fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. júní 2025 09:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ónefndur Íslendingur segist vera alveg búinn að fá nóg af því að ferðamenn sem heimsækja íslenskar sundlaugar fylgi ekki reglunum og fari ekki undir sturtuna og þrífi sig áður en farið er út í laugina. Gengur hann svo langt að krefjast þess að ferðamenn haldi sig framvegis fjarri sundlaugum hér á landi.

Ljóst er að oft hefur verið kvartað yfir tregðu ferðamanna og annarra sundlaugargesta af erlendum uppruna til að hlýða reglum í íslenskum sundlaugum um að þrífa sig án sundfata áður en farið er ofan í en fáir hafa kosið að gera það með jafn hvössum hætti.

Viðkomandi skrifar innlegg á samfélagsmiðilinn Reddit á ensku sem hann titlar:

„Ekki koma í sundlaugarnar okkar.“

Vill hinn ósátti íslenski sundlaugargestur meina að vandamálið hafi aldrei verið jafn útbreitt og um þessar mundir en hvað hann hefur fyrir sér í því tekur hann hins vegar ekki fram. Fullyrðir viðkomandi að næstum enginn ferðamaður þrífi sig almennilega áður en farið sé ofan í „sundlaugarnar okkar“ en rökstyður þessa alhæfingu sína ekki frekar.

„Það er fullkomlega viðbjóðslegt“ bætir hinn ósátti við og vill meina að þegar ferðamenn sjái aðra ferðamenn hunsa reglurnar fylgi þeir fordæminu.

Hinn ósátti vill enn fremur meina að íslenskir unglingar sem hann lýsir sem „afar sjálfmeðvituðum“ hafi lært þessa „skelfilegu hegðun“ af ferðamönnum. Hvað viðkomandi hefur fyrir sér í því að íslenskir unglingar hafi aldrei óhlýðnast reglunum áður en fjöldi ferðamanna í sundlaugunum fór að aukast kemur ekki fram.

Á ferðinni

Hinn ósátti íslenski sundlaugargestur segist hafa orðið var við þessa hegðun ferðamanna á ferðum sínum um landið undanfarið og að þetta sé hegðun sem blasi við í hverju einustu sundlaug sem hann heimsæki. Hópar ferðamanna fari ofan í laugarnar með þurrt hár og þurr sundföt. Það eigi ekki að fara á milli mála hverjar kröfurnar séu þar sem áberandi skilti séu á öllum sundstöðum og því sé ekki hægt að afsaka sig með þekkingarleysi.

Hvetur viðkomandi ferðamenn til að heimsækja hin svokölluðu lón og borga tífalt hærri aðgangseyri en í hefðbundnum sundlaugum og baða sig þar í óhreinindum hvers annars. Séu ferðamenn of feimnir til að fara naktir í sturtu fyrir framan annað fólk eigi þeir að halda sig frá íslenskum sundlaugum.

Síðasta málsgreinin er skrifuð á íslensku. Í henni segist hinni ósátti búast við aðrir Íslendingar andmæli innlegginu og segja hann taka of djúpt í árinni en hann segist standa við orð sín og virðist töluvert niðri fyrir:

„Þetta er viðbjóður og ég er búinn að fá upp í kok af meðvirkninni með þessari hegðun. Síðast í dag benti ég túrista sem var að fara skrjáfaþurr ofan í laug að það væri skylda að þvo sér og fékk bara hortugheit til baka. Þeim er drull.“

Bera af sér sakir

Innleggið hefur fengið þegar þessi orð eru rituð mikil viðbrögð en nokkur hundruð athugasemdir hafa verið ritaðar við það. Þær athugasemdir sem mest viðbrögð hafa fengið eru frá einstaklingum sem segjast hafa séð fræðslumyndband um íslenska sundlaugarmenningu í flugvélum Icelandair á leið til landsins og frá fólki sem ber af sér sakir. Fólk í síðarnefnda hópnum segist hafa í heimsóknum sínum í íslenskar sundlaugar fylgt reglunum og þrifið sig án sundfata áður en farið var ofan í viðkomandi laug.

Einn einstaklingur segir að í sínum huga hafi ekkert annað komið til greina en að virða siði og reglur á Íslandi enda hafi hann verið gestur hér á landi og bætir því við að líklega þurfi einhvers konar átak til að bæta úr þessu ástandi.

Einn svarenda bendir á að vandamálið geti átt sína rót í því að þrifin á sundfata séu kynnt fyrir erlendum gestum sem hluti af menningu en ekki sem reglur til að halda laugunum hreinum. Þátttaka í menningu sé almennt valkvæð.

Ljóst er að töluverð feimni er við nekt í mörgum löndum heims til að mynda í Bandaríkjunum þaðan sem flestir ferðamenn koma til Íslands. Þó nokkrir Bandaríkjamenn sem svara innlegginu segjast hafa látið sig hafa það að fara í sturtuna án sundfata en einn segir að það hafi komið eilítið á óvart að öllu fólki á sturtusvæðinu hafi virst nákvæmlega sama.

Ekki dæma

Þar sem athugasemdir við innleggið eru svo margar er ekki hægt að gera grein fyrir öllum sjónarmiðum sem þar koma fram. Töluvert virðist um jákvæð viðbrögð frá fólki sem ferðast hefur til landsins. Einn svarandi segist hafa heimsótt Secret Lagoon á Flúðum og fylgt reglunum þótt það hafi verið óþægilegt. Honum þyki leitt að sumir ferðamenn fari ekki eftir reglunum en biður hinn ósátta Íslending að nota ekki þann hóp til að dæma alla ferðamenn.

Þeir Íslendingar sem taka til máls í umræðunni taka undir innleggið og segja þörf á því að framfylgja reglunum betur. Sumir segjast raunar hafa tekið það upp hjá sjálfum sér að beina tilmælum til ferðamanna um að hlýða reglunum og þrífa sig. Einn aðili sem ritar svar sitt á ensku hvetur Íslendinga eindregið áfram í þeim efnum:

„Ég hef verið að segja þetta í langan tíma. Íslendingar eru allt of kurteisir stundum. Ég hef séð sumt fólk vekja athygli á þessu en þið ættuð öll að hugleiða að vera kvikindisleg varðandi þetta.“

Segir viðkomandi að hann muni hiklaust láta svo hressilega í sér heyra, ef hann sjái einhvern sundlaugargest ekki þrífa sig áður en farið sé ofan í, að það muni eflaust rata í íslenska fjölmiðla. Hann rifjar í því samhengi upp fréttir íslenskra fjölmiðla af ferðamönnum sem baða sig ekki áður en þeir fara ofan í sundlaugar og segir málið snúast um að halda vatninu hreinu.

Íslendingur svarar þessu og segist hafa verið svarað með dónaskap þegar hann hafi reynt að benda ferðamönnum í sundlaugum á að þrífa sig. Þessu svarar hinn ákveðni aðili með þeim hætti að í slíkri stöðu sé aðeins eitt hægt að gera:

„Það ætti þá bara að vera sátt um það að segja þeim þá að fara.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

ÍA og Terra sameina krafta til að bæta úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum

ÍA og Terra sameina krafta til að bæta úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum
Fréttir
Í gær

Íri gekk berserksgang á Reykjanesbraut

Íri gekk berserksgang á Reykjanesbraut
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“