Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaráðgjafi segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Bílastæðasjóð vegna sektarmiða sem hún fékk sem átti ekki rétt á sér. Rifjar hún af því tilefni upp að fyrir 40 árum fékk hún sekt sem hún kvartaði einnig undan, með mun minna veseni þrátt fyrir allar tækniframfarir nútímans.
„Það er aldrei gleðiaukandi að fá sektarmiða á bílrúðuna þegar farartækinu hefur verið lagt á einhvern þann hátt sem kerfinu hentar ekki. En miðinn er staðfesting á glæpnum,“
segir Sigrún í grein sinni á vefnum Lifðu núna.
Segist hún hafa fengið rukkun í heimabankann fyrir nokkrum dögum upp á 8.900 króna sekt frá Bílastæðasjóði Reykjavíkurborgar fyrir stöðvunarbrot. Eindagi greiðslu var á morgun, á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní. Sektin átti að hækka í 10.000 krónur ef greiðsla drægist.
„Krafan í heimabankanum var án nokkurra skýringa. Ekkert um hvar glæpurinn átti að hafa verið framinn, hvenær illvirkið átti sér stað, né um hvers konar glæp var um að ræða. Enginn sektarmiði á rúðu,“ segir Sigrún.
Segist hún hafa sagt manninum sínum frá rukkuninni.
„Það er hann sem venjulega keyrir bílinn og því líklega glæponinn. Hann kom af fjöllum enda höfum við ekki verið mikil á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Hann hvatti mig til þess að hafa samband við Bílastæðasjóð og fá skýringu. Ég sagðist ekki nenna að eyða tímanum í svoleiðis og samþykkti kröfuna. Hann var ósáttur. Sagði það ekki rétt að greiða reikninga sem maður teldi sig ekki eiga.“
Sonur Sigrúnar kom í heimsókn og var sama sinnis og lagði til að þau mæðginin færu inn á Ísland.is til að finna út hvers vegna rukkunin var.
„Vegferðin hófst. Rafræn skilríki. Pin númer. QR kóði. Loks opnast krafan frá sjóðnum og sannleikurinn blasir við. Ólögleg lagning bíls í miðborg Reykjavíkur. Hvít Honda, 3. júní. 10.000 kall, takk. Okkar bíll er blár með öðru númeri og við höfðum verið í útlöndum þennan umrædda dag.
Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu og sonur minn veit það. Af gæsku bauðst hann til þess að taka mynd af bílnum okkar og senda inn í kerfið og krefjast niðurfellingar. Hann þurfti að gera margar tilraunir áður honum tókst að ljúka þessari aðgerð. Samt er hann vel sjóaður í svona ferlum. Krafan er nú loks horfin út úr heimabankanum mínum, ógreidd.“
Sigrún segist sitja eftir með þá spurningu hversu margir eru í sömu sporum og hún? „Borga bara reikninginn af því að þeir geta ekki staðið í svona þvælustigi. Reikning sem viðkomandi átti aldrei að borga.“
Í ferlinu segist Sigrún hafa munað eftir því að í kringum 1975 var húnstoppuð af lögreglunni í Reykjavík, nýflutt til borgarinnar og með soninn á leið í barnaafmæli vestur í bæ.
„Ég hægði á bílnum á stöðvunarskyldu en stoppaði ekki alveg. Glæpur það! Allt í einu rennir lögreglubíll upp að hliðinni á mér og mér er sagt að stíga inn í hann. Þar hefst löng yfirheyrsla um stöðvunarskylduna og af hverju ég sé á bíl merktum A þar sem ég búi í Reykjavík. Svo var mér sleppt. Nokkrum dögum seinna kom bréf. Sekt. Þú fórst yfir á rauðu ljósi á R-merktum bíl. Mér þótti þetta undarlegt. Þetta passaði alls ekki við minn glæp.
Ég settist við ritvélina og skrifaði lögregluembættinu. Þar sagði ég að ef lögreglunni leyfðist að gera tvær staðreyndavillur í einu stuttu bréfi hlyti mér að leyfast að gera eina villu í umferðinni.“
Sigrún segist aldrei hafa heyrt meira frá lögreglunni. Hún segir sum betra í dag en alls ekki allt.
„Þegar ég skrifaði bréfið á sínum tíma vissi ég að það yrði lesið af mennskri veru. Mér fannst meira að segja svolítið gaman að skrifa þetta og gera smágrín. En það er ekkert grín að eiga við Ísland.is með pin-númerum og QR-kóða. Þar að auki er ég viss um að það er einhver gerfigreindartækni sem fer yfir beiðnina um leiðréttingu. Mannleg samskipti eru að þróast í undarlega átt!“
Í frétt á vef borgarinnar 7. nóvember 2023 kom fram að Bílastæðasjóður er hættur að prenta út álagningarseðla vegna stöðvunarbrotagjalda og setja undir rúðuþurrku bifreiða. Þess í stað birtast álagningarseðlar í heimabanka umráðamanns eða eiganda bifreiðar og inn á persónulegu pósthólfi viðkomandi á Ísland.is. Þetta á við hvort sem lagt er á aukastöðugjald vegna þess að ekki er greitt fyrir stæði eða stöðubrotsgjald fyrir að leggja ólöglega.
Þetta er eitt af fyrstu skrefunum í innleiðingu nýrrar tækni í eftirliti með stöðvun og lagningu bifreiða, auk þess sem það er umhverfisvænna að sleppa prentun. Fyrst um sinn verða settir forprentaðir miðar undir rúðuþurrku, sem minna á þessa breytingu.