fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Fréttir

Diljá Mist: Átakanlegt að hlusta á frásögn Ingu – Sendir ákall til Ölmu Möller

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. júní 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það hafi verið átakanlegt að hlusta á viðtal Ríkisútvarpsins við Ingu Vildísi Þorkelsdóttur.

Inga er með endómetríósu og í fréttum RÚV á mánudag kom fram að hún hefði gengið á milli lækna í sex ár og ítrekað verið send heim með verkjalyf. Það var ekki fyrr en hún leitaði til sérfræðings á Klíníkinni að greining fékkst en þá fékk hún að vita að verkirnir stöfuðu að líkindum af endómetríósu.

Bent var á það í umfjöllun RÚV að heilbrigðisráðuneytið hefði falið Sjúkratryggingum Íslands að semja um greiðsluþátttöku fyrir hundrað aðgerðir vegna endómetríósu á þessu sem þegar hafa verið framkvæmdar á Klíníkinni. Hundrað til viðbótar eru á biðlista eftir aðgerð og þurfa þeir að greiða aðgerðina úr eigin vasa ef þeir vilja komast í hana á þessu ári.

Endósamtökin sendu út yfirlýsingu í gær vegna málsins þar sem þau lýstu áhyggjum sínum af því að heilbrigðisráðuneytið hefði ákveðið að fækka niðurgreiddum aðgerðum.

Í grein á vef Vísis bendir Diljá Mist á að hún hafi tekið upp stöðu þessa viðkvæma sjúklingahóps í sérstakri umræðu um heilbrigðismál í þinginu.

„Þrautaganga sjúklinga með endó hefur verið með slíkum ólíkindum. Sjúkdómurinn getur valdið hryllilegum verkjum og ófrjósemi og þar til á síðasta kjörtímabili biðu konur lengi – sárþjáðar – eftir opinberri heilbrigðisþjónustu. Langt umfram viðmiðunarmörk landlæknis. Þær sem höfðu efni á, og reyndar líka þær sem höfðu það ekki, gáfust upp á biðinni og greiddu einkaaðilum háar fjárhæðir úr eigin vasa fyrir heilbrigðisþjónustu. Í ákalli til stjórnvalda sögðu Endósamtökin það vera nöturlega staðreynd að aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á Íslandi færi eftir efnahag,” segir Diljá.

Hún bendir svo á að bót hafi orðið á málum á síðasta kjörtímabili þegar þáverandi heilbrigðisráðherra samdi við einkaaðila um þjónustu sjúklinga með endó. Með því hafi biðlistar orðið styttri og sjúklingar með endó orðið jafnsettir í íslensku heilbrigðiskerfi, óháð efnahag.

Endar hún grein sína á eins konar ákalli til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra vegna málsins.

„Stjórnmálamenn segjast gjarnan leggja áherslu á jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og því er staðan sem nú er komin upp mikill prófsteinn á störf nýs heilbrigðisráðherra, Ölmu Möller. Staðan er sömuleiðis prófsteinn á Samfylkinguna sem hefur lagt mikla áherslu á heilbrigðiskerfið í sínum málflutningi, en ekki síður á Viðreisn sem ber ábyrgð á setu Ölmu í þessari ríkisstjórn. Mun nýr heilbrigðisráðherra hugsa um hag endó-sjúklinga? Eða munu gamaldags hugsun og fordómar í garð einkaaðila byrgja henni sýn?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gátu lítið hjálpað þolanda kynþáttaníðs á TikTok

Gátu lítið hjálpað þolanda kynþáttaníðs á TikTok
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Daníel Kári: „Þetta er ekki frábær staða“ – Opnun Starbucks frestast

Daníel Kári: „Þetta er ekki frábær staða“ – Opnun Starbucks frestast
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Viktor lést af slysförum á Esjunni

Viktor lést af slysförum á Esjunni