María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir mótmæli hægri öfgafólks í gær birtingarmynd ástands sem hingað til hafi verið í lokuðum Facebook-grúbbum. Sumir stjórnmálaflokkar hafi hellt olíu á eldinn með sinni orðræðu.
„Ég viðurkenni að maður er kannski orðinn allt of dofinn gagnvart andúðaráróðri öfgaafla á Íslandi. Orðinn meðal annars vanur höggunum sem beinast gegn tilverurétti fólks,“ segir María Rut í færslu á samfélagsmiðlum. „Þar sem öfl sem amast út í fjölbreytileika, útlendinga og hinseginleika hafa verið hávær síðustu ár.“
Vísar hún til mótmæla sem haldin voru á Austurvelli í gær. Segir hún þetta vera birtingarmynd fyrir ástand sem hafi hingað til verið í lokuðum Facebook grúbbum en sé núna komið upp á yfirborðið.
„Það er auðvitað lýðræðislegur réttur allra til að mótmæla og tjá sínar skoðanir. En við hljótum að staldra við og spyrja okkur hvers vegna við séum stödd á þessum stað á þessum tímapunkti?“ spyr hún.
Segir hún að umræðan í gær hafi snúist um „stjórnlaus landamæri“, múslima og „hatur þeirra á íslenskri menningu“, vísað hafi verið í „Íslandssöguna“ og „sjálfstæðisbaráttu Íslendinga,“ „forfeður okkar,“ „glóbalista,“ og „gildin okkar.“ Vegið hafi verið snyrtilega að fjölmiðlum og stofnunum landsins, helstu grunnstoðunum. Þemað hafi verið að „ná Íslandi til baka,“, „bjarga Íslandi.“
„En bjarga Íslandi frá hverju? Ná Íslandi til baka frá hverjum? Þetta er vissulega hluti af ákveðinni stemningu sem sumir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa beinlínis stundað að hella olíu á eldinn á með sinni orðræðu. Við og þið. Hræðsluáróðri og upplýsingaóreiðu,“ segir María Rut. „Í handbók popúlistans er þetta atriði númer eitt. Finna einhverja leið til að sundra fólki. Búa til ótta og óöryggi.“
Fyrir vikið hafi pendúllinn sveiflast og normin breyst. Samhljómurinn hafi aukist og frjálslyndar raddir þagnað, uppgefnar á að halda upp vörnum og mótvægi við umræðunni. Tölfræði og staðreyndir virðist engu skipta.
„Ég viðurkenni alveg að ég hef fundið fyrir því sjálf. Að klára tankinn. Hafandi öskrað mig hása gegn kynbundnu ofbeldi um áraraðir og svo í forsvari fyrir Hinseginleikann. Að taka slaginn aftur og aftur getur verið örmagnandi,“ segir hún. „En við sem trúum á opið og frjálst samfélag – samfélag þar sem er pláss fyrir okkur öll – verðum að halda áfram og setja bensín á tankinn og tala fyrir frjálslyndi og uppræta fordóma. Því þögnin mun aðeins magna upp hatrið. Þannig virkar opið, lýðræðislegt samfélag.“
Segir hún að það verði að lækka þann þrýsting sem sé að myndast á milli hópa. Finna leiðir til að tala saman á grunni staðreynda án úthrópana.
„Við verðum að komast upp úr þessum skotgröfum og inn í veruleikann eins og hann er,“ segir hún og hvetur fólk til að læra af sögunni.