Reikna má fastlega með því að þremur eða fleiri mönnum verði birt ákæra vegna meintrar hlutdeildar þeirra í dauða Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, 65 ára gamals manns frá Þorlákshöfn, sem fannst þungt haldinn í Gufunesi þann 11. mars og lést sama dag af völdum misþyrminga sem hann hafði orðið fyrir.
Þrír menn hafa setið í gæsluvarðhaldi undanfarna mánuði vegna rannsóknar málsins en framan af rannsókn voru margir handteknir og yfirheyrðir, þar á meðal tvær konur. Talið er fullvíst að mennirnir þrír verði ákærðir en líklegt er að fleiri verði ákærð fyrir hlutdeild í glæpnum.
Að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, er rannsókn málsins á lokametrunum. DV spurði hann hvort málið væri farið frá lögreglu til embættis héraðssaksóknara. „Það er ekki farið frá okkur en það er svona alveg við það að verða það,“ segir Sveinn.
Samkvæmt lögum um meðferð sakamála er óheimilt að halda mönnum lengur en 12 vikur í gæsluvarðhaldi án þess að gefa út ákæru. Þau tímamörk varðandi gæsluvarðhald mannanna þriggja nálgast nú óðfluga. Að sögn Sveins eru lögregla og héraðssaksóknari mjög meðvituð um þessi tímamörk:
„Það styttist í það, það styttist í 12 vikurnar, við erum komin í gott samstarf við héraðssaksóknara, raunar er það samstarf alltaf gott, en hann er búinn að fá málið til að fara yfir það, það vantar bara smá gögn til að við getum skilað því frá okkur.“
Af þessu má ráða að búast má við því að ákæra verði gefin út í málinu innan örfárra vikna.