Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) halda úti TikTok-reikningi sem kallast Ekkert slor. Þar hafa undanfarið birst myndbönd þar sem varað er við hækkun veiðigjalda, en fyrir þá sem rekast fyrir tilviljun á myndböndin er ekki augljóst hvaðan þau koma. Fólk þarf sérstaklega að skoða reikninginn sjálfan til að sjá að þarna er SFS á ferðinni. Heimildin vekur athygli á málinu og bendir á að í nokkrum myndböndum megi sjá unga konu, hagfræðinginn Birtu Karen Tryggvadóttur, tala um veiðigjöldin. Birta kynnir sig sem hagfræðing en nefnir ekki að hún starfi fyrir SFS.
Þess má jafnframt geta að Birta hefur lengi verið virk innan Sjálfstæðisflokksins, setið í stjórn Heimdallar og í framkvæmdastjórn SUS og situr nú í atvinnuveganefnd flokksins. Samkvæmt Orðinu á götunni fundaði Birta með þingliði Sjálfstæðisflokksins í kaffistofu Alþingis í skála þar sem hún lagði þeim línurnar í umræðunni um veiðigjöldin.
@ekkertslorSmá staðreynd um arðsemi eftir atvinnugreinum
Nokkrir hafa gagnrýnt Birtu og Ekkert slor fyrir villandi framsetningu. Einn skrifar: „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni,“ en SFS svarar því að það sé ekkert leyndarmál að SFS eigi þennan TikTok-reikning. Gagnrýnandinn taldi þetta ekki nógu gott svar: „Það kemur ekki fram í þessu tiktoki. Þannig að það er greinilega eitthvað óþægilegt fyrir ykkur að koma fram undir nafni.“
Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata, birti myndband á TikTok. Hún er líka hagfræðingur en tekur fram að ólíkt Birtu sé hún ekki á mála hjá SFS. „Frá einum hagfræðingi til annars, þá veit ég ekki hvort þetta sé sniðugt, að setja þessar upplýsingar fram á þennan hátt.“
Gunnhildur segir að þar sem hagsmunatengsl séu klárlega til staðar hefði Birta átt að taka sérstaklega fram að hún vinni fyrir SFS.
@gunnhildurfrida Myndbandið var upphaflega birt á @Ekkert slor 🐟 ♬ original sound – Gunnhildur