fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Jón Gnarr er enginn spámaður – „Ég veðjaði 5000 krónum“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 9. maí 2025 21:30

Jón Gnarr sagði að það myndi aldrei verða kjörinn amerískur páfi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, greinir frá því á samfélagsmiðlum að spádómsgáfa hans sé ekki merkilegur pappír. Hefur hann þrisvar á skömmum tíma flaskað á spádómum.

„Þegar ég heyrði fyrst hvíslað um það að Katrín Jakobsdóttir hygðist bjóða sig fram til embætti forseta þá vísaði ég því alfarið á bug og kallaði slíkt tal þvaður og bað ekki heldur skipaði fólki að hlífa mér við því. Ég sagði það absúrd pælingu og jafnvel ólöglegt að sitjandi forsætisráðherra tæki upp á slíku,“ segir Jón í færslunni, en hann var sjálfur í framboði eins og flestir muna.

Bætti hann því við að Katrín væri dúx og færi skipulega og varlega yfir, gæti verið ákveðin en svona fáránleg hugmynd væri svipað og ef reyndur göngumaður viki af hefðbundinni leið og hlypi blindandi út í óvissu.

„Ég veðjaði 5000 krónum uppá það að Þórdís Kolbrún myndi bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins,“ segir Jón um spádóm númer tvö sem rættist ekki. „Ég var hlæjandi á meðan því ég var svo handviss um að ég væri að fara að vinna.“

Sá síðasti lýtur að nýloknu páfakjöri þar sem hinn bandaríski Robert Prevost var kjörinn.

„Nú síðast fullyrti ég við menn ítrekað að næsti páfi yrði líklegast Ítali. Hvar sem þetta bar á góma skólaði ég fólk í undraheimi páfakjörs. Þegar einhver myntist á þennan Bandaríska kardínála þá svaraði ég því með hnussi og jafnvel örlitlum hæðnishlátri og sagði svo: Ameríkani verður ALDREI páfi !,“ segir Jón. „Hef nú komist að því að ég er enginn spámaður um neitt og það viðurkennist hér. En góða helgi !“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ísland í hringiðu risastórrar lögregluaðgerðar – 57 handteknir

Ísland í hringiðu risastórrar lögregluaðgerðar – 57 handteknir
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fékk inni á gistiheimili en lendir aftur á götunni á morgun – „Ég vona að Sanna hafi ekki verið að segja ósatt“

Fékk inni á gistiheimili en lendir aftur á götunni á morgun – „Ég vona að Sanna hafi ekki verið að segja ósatt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ingólfur Valur Þrastarson vann skaðabótamál á hendur ríkinu vegna handtöku

Ingólfur Valur Þrastarson vann skaðabótamál á hendur ríkinu vegna handtöku