fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Hvað getum við lært af aðförinni að Ásthildi Lóu?“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 28. mars 2025 09:30

Ásthildur Lóa Þórsdóttir í viðtali við RÚV 20. mars síðastliðinn. Mynd: Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Traust mitt til Ríkisútvarpsins hefur beðið verulega hnekki við áðurnefndan fréttaflutning. Ég vil geta treyst því að fréttir þess séu vel og faglega unnar. Ríkisútvarpið hefur veigamiklu öryggishlutverki að gegna þegar vá ber að höndum og því er nauðsynlegt að fólkið í landinu geti treyst því að fréttaflutningur þess sé hafinn yfir allan vafa.“

Hulda Steingrímsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, segir okkur lánsöm að búa í lýðræðis þjóðfélagi og þar ríki tjáningarfrelsi. Öllu frelsi fylgi sú ábyrgð að frelsi okkar má hvorki hefta frelsi annarra eða skaða aðra. Í skoðanagrein sinni segir Hulda:

„Eigum við þá að sitja þegjandi hjá þegar Ríkisútvarpið sjálft flytur óstaðfestar fréttir um saknæmt athæfi manneskju og eyðileggur þar með mannorð hennar? Ég segi nei. Á örskotsstundu berst þessi óstaðfesta frétt ekki bara um alla fjölmiðla hérlendis heldur líka í flesta fjölmiðla í hinum vestræna heimi. Kaldhæðnin í texta Friðriks Dórs endurspeglar vel þennan hrylling: „En hvers vegna ætti maðurinn að segja satt? Þegar lygin loðin getur flogið svona hratt… Hentu manneskju á bálið sjáðu augu fólksins ljóma glatt.“

Á Ríkisútvarpið að komast upp með svona fréttamennsku, sem eyðileggur mannorð fólks að ósekju? Við höfum lög í landinu sem eiga að vernda okkur fyrir ósönnum ásökunum. Ríkisútvarpinu og reyndar öllum fjölmiðlum þessa lands hlýtur að bera skylda til að starfa samkvæmt þeirri löggjöf, lögum og reglum um fjölmiðla og siðareglum blaðamanna.“

Hulda telur að Ríkisútvarpið hafi í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur farið yfir öll siðferðileg mörk og hljóti að biðja hana afsökunar. „Ríkisútvarpið þarf að leiðrétta þessi alvarlegu mistök í fréttaflutningi sínum og hreinsa Ásthildi Lóu af ásökunum um saknæmt athæfi. Það hefur verið vegið mög harkalega að henni bæði faglega og persónulega, hvað varðar einkalíf hennar og fjölskyldu.“

Hulda segir að við gerum öll mistök, sem við þurfum í fyrsta lagi að horfast í augu við og leiðrétta, og í öðru lagi biðjumst við afsökunar og reynum við að bæta fyrir mistökin eins og kostur er. 

„Í máli Ásthildar Lóu hefur því miður orðið skaði, sem að öllum líkindum er að töluverðu leyti óbætanlegur. Ég skora á ykkur öll sem hafa átt einhvern þátt í þessari aðför að Ásthildi Lóu að gera allt sem þið mögulega getið til að bæta fyrir brot ykkar, reyna að draga úr þeim skaða sem orðið hefur og hreinsa hana af ósönnum ásökunum. 

Hvað getum við lært af aðförinni að Ásthildi Lóu? Spyrjum okkur sjálf. Hvernig samfélag viljum við skapa hér á Íslandi? Eru þetta þau gildi sem við viljum kenna börnunum okkar, að það sé í lagi að bera ósannaðar sakir á fólk og reyna þannig að upphefja sig á kostnað annarra, hvað sem það kostar? Hvernig manneskjur viljum við vera? Erum við að fylgja Gullnu reglunni, að koma fram við aðra eins og við myndum vilja að komið væri fram við okkur?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra