fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

Efling hvetur tugi opinberra stofnana til að hætta viðskiptum við fyrirtæki í SVEIT

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. mars 2025 14:00

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efling stéttarfélag hefur sent áskoranir á 25 opinberar stofnanir þar sem skorað er á þær að hætta viðskiptum við veitingafyrirtæki sem brjóta gegn gildandi kjarasamningum. Meðal stofnananna sem um ræðir eru lögregluembætti, dómstólar og fimm ráðuneyti.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eflingu.

Fyrirtækin sem um ræðir eru virk aðildarfélög í Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT. Sem kunnugt er hefur SVEIT gert svokallaðan kjarasamning við gervistéttarfélagið Virðingu, félag sem stofnað er og stýrt af atvinnurekendum í veitingageiranum.

Umræddur kjarasamningur skarast á við gildandi kjarasamning Eflingar stéttarfélags og Samtaka atvinnulífsins. Hann er í ósamræmi við lög og lágmarkskjör á vinnumarkaði. Kjarasamningurinn er þá ólögmætur sökum þess að Virðing uppfyllir ekki skilyrði þess að teljast stéttarfélag í skilningi laga, sökum þess að það er stofnað að undirlagi atvinnurekenda og er undir þeirra áhrifum.

Efling stéttarfélag hefur ástæðu til að ætla að þau fyrirtæki sem um ræðir styðjist við umræddan kjarasamning og brjóti þannig gegn réttindum starfsfólks. Því bendir félagið í áskorun sinni hinum opinberu stofnunum á skyldur þeirra til að trygga að farið sé eftir kjarasamningum og réttindi launafólks séu tryggð. Gríðarlegir samfélagslegir hagsmunir eru af því að verkefni stjórnvalda séu framkvæmd í samræmi við réttindi launafólks og að opinbert fjármagn renni ekki til fyrirtækja sem stunda félagslegt undirboð.

Því skorar félagið á umræddar 25 stofnanir að láta af viðskiptum við fyrirtæki sem eru aðilar að kjarasamningi SVEIT og Virðingar. Meðal þeirra stofnana sem um er að ræða eru Dómstólasýslan, Dómstólaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Hefur Efling óskað eftir svörum frá öllum viðtakendum eigi síðar en að viku liðinni frá móttöku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum
Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
Fréttir
Í gær

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann
Fréttir
Í gær

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“