

Jón Ingi Hákonarson oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar gerir athugasemdir við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 sem meirihluti bæjarstjórnar samþykkti í vikunni. Segir hann bæjarstjórann lýsa árangrinum sem glansmynd byggðri á hálfsannleika og rekstur Hafnarfjarðarbæjar þann veikasta á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Jón ber stöðuna saman við ef hann tæki persónulegan yfirdrátt:
„Ef ég hækka yfirdráttinn minn hef ég meira ráðstöfunarfé um stund en tekjur mínar hafa ekki hækkað. Skuldadagurinn kemur alltaf. Þá þarf ég að borga lánið til baka og þá lækka ráðstöfunartekjurnar mínar.
Þetta er nákvæmlega staðan í Hafnarfirði enn eitt árið. Meirihlutinn hefur í fjögur ár lýst rekstri bæjarins sem ábyrgum og stöðugum. Ég er ósammála. Reksturinn er í raun sá veikasti á öllu höfuðborgarsvæðinu.“
Jón segir í grein sinni allan rekstur, hvort sem það er heimili, fyrirtæki eða sveitarfélag, verða að skila nægum afgangi til að standa undir afborgunum af skuldum.
„Ef afborganir ársins eru 2,5 milljarðar þarf afgangurinn að vera að minnsta kosti 2,5 milljarðar. Annars þarf að taka lán. Mælikvarðinn sem skiptir máli er handbært fé frá rekstri hvað er eftir þegar búið er að greiða allan reglulegan kostnað af reglulegum tekjum. Þetta er sú tala sem segir hvað reksturinn skilar til afborgana og fjárfestinga.
Samtals hefur reksturinn skilað á kjörtímabilnu 670 milljónum í mínus. Það hefur þurft að taka 670 milljónir að láni fyrir launum. Þá eru eftir afborganir lána á kjörtímabilinu: 8,89 milljarðar.
Samanlagt hefur þurft að taka 9.5 milljarða króna að láni til að greiða afborganir lána og laun. Þetta er slík upphæð að ég á erfitt með að ná utan um hana. En þetta jafngildir 6,5 milljónum á dag, 272 þúsund krónur á tímann, eða 4.500 krónur á mínútu – alla daga, allan sólarhringinn, allt kjörtímabilið.“
Jón segist ekki deila sömu sýn á stöðuna og bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, sem lýsi árangrinum svo: „Hafnarfjarðarbær hefur byggt upp ábyrgan rekstur sem skilar stöðugleika, fyrirsjáanleika og svigrúmi.“
Ástæðan er einföld segir Jón:
„Glansmynd meirihlutans byggir á því að horft er á rekstrarreikning A- og B-hluta þar sem ýmsum tekjum er komið fyrir sem ekki eiga heima í grunnrekstrinum. Tekjur eru blásnar út til að fegra myndina. En sjóðstreymið segir aðra sögu og allt sem segja þarf. Þar sést skýrt að halli grunnrekstrarins hefur verið falinn með peningum sem eiga ekki að fara í reksturinn: lóðasölu og gatnagerðargjöldum. Þetta eru peningar sem eru innheimtir til að standa undir fjárfestingum í innviðum – ekki til að reka skóla, greiða laun eða fjármagna félagsþjónustu.
Í raun hefur Hafnarfjörður verið að taka lán hjá framtíðaríbúum bæjarins.“
Segir um frestaða skattheimtu að ræða, en snúa megi stöðunni við
Jón segir að sú aðferð að taka lán til að borga af eldri lánum og launum er ekkert annað en frestuð skattheimta.
„Hún fellur á íbúa bæjarins síðar sérstaklega þegar verðtryggð lán fara að bíta. Það mun gerast eftir að þeir sem bera ábyrgð á þessari fjármálastjórn eru hættir og þurfa ekki að horfast í augu við afleiðingarnar.
Segir Jón stöðuna aðeins munu versna, árið 2027 þarf að taka 1,5 milljarða í lán til að brúa rekstrarbilið og árið 2028 þarf að taka 1,3 milljarða til viðbótar.“
Hann segir að þrátt fyrir alvarlega stöðu sé lausn til staðar og byrja þurfi á að hætta að taka lán til að borga lán.
„Rekstur þarf að byggjast á raunverulegum tekjum og skýrri forgangsröðun. Það er hægt að snúa þessari þróun við, en aðeins með því að horfast í augu við stöðuna eins og hún er ekki eins og meirihlutinn vill sýna hana.“