fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

Færeyingar loksins að setja þvinganir á Rússa – Beita sér gegn skuggaflotanum

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 4. desember 2025 14:30

Færeyska þingið samþykkti þvingunaraðgerðir gegn rússneskum útgerðum. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Færeyska þingið hefur samþykkt lög sem heimila utanríkisráðuneytinu að setja þvinganir á rússnesk útgerðarfélög sem starfa í lögsögu eyjanna. Færeyingar hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir að fylgja ekki flestum öðrum Evrópulöndum í þvingunaraðgerðum á Rússa.

Eins og segir í frétt Seafood Source um málið þá er löggjöfinni einkum beint gegn rússnesku útgerðarfélögunum Murman Seafood og Norebo sem eru sökuð um njósnir á evrópsku hafsvæði, það er hinn svokallaði skuggafloti Rússa. Evrópusambandið, Norðmenn og Íslendingar hafa þegar sett þvinganir á rússneskar útgerðir.

Færeyingar eru hins vegar mun tengdari Rússum og stunda mun meiri viðskipti við þá en aðrar evrópskar fiskveiðiþjóðir. Nær þetta nána samstarf aftur til ársins 1977. Þess vegna höfðu færeyskar útgerðir áhyggjur af því að þvinganirnar gætu bitnað á færeyskum hagsmunum. Til að mynda að markaðir fyrir færeyskan fisk myndu lokast og að þeir fengju ekki aðgang að Barentshafinu eins og þeir hafa haft.

Rússar hafa þegar brugðist við og greint frá því í rússneska ríkismiðlinum RIA Novosti að Færeyingar megi búast við að Rússar svari aðgerðum þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“