

Farþegi sem slasaðist alvarlega í árekstri tveggja bifreiða á Fjarðarheiði í dag er látinn. Kemur það fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.
Lögreglu barst tilkynning klukkan tvö í dag um árekstur tveggja bifreiða í Stafdal ofan Seyðisfjarðar. Snjóþekja var á vettvangi og skafrenningur þegar óhappið varð.
Ökumenn og farþegar voru fluttir á heilsugæslu Egilsstaða.
Átta voru í bílunum tveimur. Einn var talinn alvarlega slasaður en aðrir minna.
Störfum lögreglu á vettvangi er lokið.