

Krónan og viðskiptavinir hennar söfnuðu samtals 10 milljónum króna í jólasöfnun sem fór fram í verslunum Krónunnar í byrjun desember og munu styrkirnir nýtast 500 fjölskyldum víðsvegar um landið. Viðskiptavinum gafst þar kostur á að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi um matarúthlutanir í aðdraganda hátíðanna. Samtals söfnuðu viðskiptavinir fimm milljónum króna sem Krónan síðan jafnaði, og rennur samanlögð upphæð óskert til tólf hjálparsamtaka í formi gjafakorta í Krónuna.
„Það er alltaf ánægjuleg stund að afhenda hjálparsamtökunum þá upphæð sem safnast í jólasöfnun okkar og viðskiptavina. Jólastyrkurinn er okkur afar kær og við erum þakklát viðskiptavinum fyrir samhuginn og viljann til að láta gott af sér leiða. Margt smátt gerir eitt stórt og með þessu getum við aðstoðað 500 fjölskyldur við matarinnkaupin um hátíðarnar. Það vonandi léttir aðeins undir og dregur úr álagi sem oft getur fylgt þessum árstíma,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum að styrkja um 500 krónur eða meira í lokaskrefi greiðslu í verslunum Krónunnar um allt land. Krónan jafnaði síðan framlagið og rennur heildarstyrkurinn til þeirra sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru veittir í formi gjafakorta svo styrkþegar geti valið sína eigin matarkörfu og keypt það sem hentar hverri fjölskyldu.
Góðgerðarsamtökin sem hlutu styrki frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Selfosskirkja, Landakirkja í Vestmannaeyjum, Velferðarsvið Reykjanesbæjar, Velferðasjóður Eyjafjarðarsvæðis, Soroptimistafélag Mosfellsbæjar, Rauði krossinn í Vík og Stórólfshvolskirkja á Hvolsvelli.