
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Vesturlands þann 10. desember yfir jarðýtustjóra sem ákærður var fyrir akstur undir áhrifum áfengis.
Ákært var vegna atviks þann 19. júní 2024, við Elínarveg á Akranesi. Þar var maðurinn við vinnu en tilkynnt var til lögreglu að hann væri að stýra vinnutækinu undir áhrifum áfengis. Búið væri að taka af honum kveikjulátslyklana en hann neitaði að yfirgefa vinnuvélina.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir manninn sofandi inni í jarðýtunni og var áfengislykt af honum.
Blóðsýnistaka af manninum leiddi í ljós að hann var undir miklum áhrifum áfengis. Hann sagðist hafa fest vélina og vegna vonbrigða yfir því og annarra erfiðleika í lífi sínu þar á undan hafi hann tekið fram lítraflösku af vodka sem hann hafði meðferðis og klárað hana í einum teyg.
Hann hélt því hins vegar fram að hann hefði ekki stýrt vinnuvélinni eftir að hann drakk áfengi heldur hafi hann bara fengið sér að drekka eftir að hann hafði fest tækið.
Framburður hans þótti ótrúverðugur og ekki í samræmi við framburð vitna. Þótti mun líklegra að hann hefði fest vélina vegna þess að hann var að vinna drukkinn á henni.
Niðurstaðan var sú að jarðýtustjórinn var sakfelldur og dæmdur til greiðslu 270 þúsunda króna sektar í ríkissjóð. Ef hann greiðir ekki þarf hann að sitja í fangelsi í 20 daga. Hann var ennfremur sviptur ökurétti í þrjú og hálft ár.