fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Segir Trump sýna greinileg merki um vitsmunalega hrörnun

Ritstjórn DV
Laugardaginn 29. nóvember 2025 16:30

Donald Trump. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni birti New York Times greiningu þar sem fram kom að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefði sinnt mun færri verkefnum á fyrstu tíu mánuðum seinni forsetatíðar sinnar en á fyrri forsetatíðinni. Samkvænt greiningu blaðsins á dagskrá Trumps, sem er 79 ára gamall, hafði hann aðeins klárað 1.029 verkefni á þessu tímabili samanborið við 1.688 á sama tímabili.

Greinin kveikti enn á ný undir umræðum um heilsufar Trump sem margir telja að fari augljóslega hrakandi.

Einn þeirra er læknirinn Vin Gupta, sem er sérlegur álitsgjafi hjá NBC fréttastöðinni. Hann segir að vitsmunaleg hrönun forsetans sé augljós og nefnir sem dæmi hæg viðbrögð forsetans á dögunum þegar að Gordon Findlay, framkvæmdastjóri heilbrigðismála hjá lyfjarisanum Novo Nordisk, féll í yfirlið á blaðamannafundi á skrifstofu forsetans.

„Hann sýndi engin merki um að hafa einhverjar áhyggjur. Hann gerði í raun ekkert. Hann var hægur að bregðast við og það sést á opinberum viðburðum að hann er orðinn hægari og þreyttari,“ segir Gupta.

Segja má að Trump sé að einhverju leyti fórnarlamb eigin hörku í garð forvera síns, Joe Biden, en Trump gerði harða atlögu að honum varðandi heilsufar og meinta hrörnun hans á sínum tíma.

Og eins og búast mátti við var Trump allt annað en sáttur við grein New York Times. Sagði hann að greining blaðsins væru falsfréttir og að allt sem blaðið skrifaði um hann væri neikvætt. Þá fullyrti hann að hann væri við hestaheilsu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn
Fréttir
Í gær

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“