fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Fréttir

Sérfræðingur er áhyggjufullur – Segir þetta geta verið síðustu aðvörunina til Evrópu áður en stórstyrjöld við Rússland brýst út

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 14. ágúst 2025 03:15

Putin og Trump á leiðtogafundi árið 2019. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sænski prófessorinn og Rússlandssérfræðingurinn Stefan Hedlund hefur áhyggjur af fundi Donald Trump og Vladímír Pútín í Alaska á morgun. Raunar er hann mjög áhyggjufullur.

„Tilkynningin um að Donald Trump og Vladímír Pútín ætli að hittast í Alaska, getur vel verið síðasta aðvörunin til Evrópu – áður en við drögumst inn í stríð við Rússland,“ skrifar hann í grein sem birtist í Expressen.

Í greininni ber hann þennan fyrirhugaða fund saman við svolítið sem lætur kalt vatn renna milli skins og hörunds á mörgum Evrópubúum, það er þeim sem þekkja til forsögu síðari heimsstyrjaldarinnar.

Með München-samningnum, sem var undirritaður 1938, fengu Adolf Hitler og Þýskaland nasista yfirráð yfir hinu iðnvædda Sudeterland sem var þá hluti af Tékkóslóvakíu. Þessi samningur var gerður að Tékkóslóvakíu forspurðri.

Nokkrum mánuðum síðar innlimuðu Þjóðverjar restina af Tékkóslóvakíu og í september 1939 réðust þeir á Pólland og þar með hófst síðari heimsstyrjöldin.

Hedlund segir hættu á að eitthvað svipað þessu gerist nú ef Trump gerir samning, án samráðs við Evrópubúa og ekki síst án þess að hafa Úkraínu með í ráðum, um að stór hluti af austurhluta Úkraínu, þar sem eru miklar náttúruauðlindir og mikill iðnaður, verði hluti af Rússlandi. Þetta virðist vera skilyrði af hálfu Pútíns ef friðarsamningur á að nást.

Hedlund segir að ef þetta verði raunin, geti afleiðingarnar orðið hörmulegar.

„Þetta er einmitt martraðarsviðsmyndin sem margir hafa varað við. Ef Evrópa samþykkir að Úkraína verði neydd til að „semja“ við Trump og Pútín, þá höfum við grafið okkar eigin gröf. Eftir nokkur ár mun Rússland hafa vígvæðst nægilega mikið til að geta lagt restina af Úkraínu undir sig því þar verða ekki lengur traustar varnarlínur. Síðan kemur röðin að okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Segir þjóðina með þeim í liði eftir harmleikinn í Suður-Afríku – „Hjartað mitt er hjá Maríu 24-7“

Segir þjóðina með þeim í liði eftir harmleikinn í Suður-Afríku – „Hjartað mitt er hjá Maríu 24-7“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“
Fréttir
Í gær

Einar segir Færeyinga hafa beitt sér gegn hagsmunum Íslands – „Frændur en engir vinir”

Einar segir Færeyinga hafa beitt sér gegn hagsmunum Íslands – „Frændur en engir vinir”
Fréttir
Í gær

Hraunar yfir jólatónleika Emmsjé Gauta – „Dröslað á svið í færibandavinnu sem minnti á sláturhús“

Hraunar yfir jólatónleika Emmsjé Gauta – „Dröslað á svið í færibandavinnu sem minnti á sláturhús“