fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Lögreglan biðst afsökunar á að hafa dreift falsaðri mynd

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 31. júlí 2025 12:07

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur beðist afsökunar á að hafa dreift falsaðri mynd af hópi manna sem grunaðir eru um þjófnað á hundruðum lítra af díselolíu frá flutningafyrirtækinu Fraktlausnir. Í gær birti lögreglan myndina og óskaði eftir að ná tali af mönnunum á henni en í ljós hefur komið að um er að ræða skjáskot úr myndbandi úr eftirlitsmyndavéla Fraktlausna en myndinni hafði verið breytt verulega, líklega með aðstoð gervigreindar og var upphaflega birt í Facebook-hópnum Þjófar á Íslandi. Ljóst er að myndin haf ekki rétta mynd af útliti mannanna sem leitað er að.

Tilkynning lögreglunnar fer hér á eftir í heild sinni:

Fölsk mynd fór í umferð vegna mistaka

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðst einlæglega afsökunar á að hafa dreift mynd sem breytt hafði verið með notkun gervigreindar. Myndin var send út í tengslum við yfirstandandi rannsókn á eldsneytisþjófnaði í borginni.

Umrætt myndefni, gaf ekki rétta mynd af útliti einstaklinganna sem óskað var upplýsinga um og hefur myndin þegar verið fjarlægð af öllum miðlum lögreglu. Réttri mynd verður í kjölfarið komið til fjölmiðla og þess óskað að þeir fjarlægi myndina sem átt hafði verið við eða komi því ellegar skýrt til skila að hún sé fölsuð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur áherslu á að almenningur geti treyst öllu því sem hún sendir frá sér. Nauðsynlegt hefði verið að sannreyna myndefnið með fullnægjandi hætti áður en því var dreift í tengslum við rannsókn lögreglu. Við skoðun er augljóst að öryggismyndavél í þessari fjarlægð hefði ekki getað skilað jafn skýrum myndum. Þetta þekkir lögreglan vel sem vinnur með slíkt myndefni á hverjum degi.

Verklag embættisins verður tekið til endurskoðunar í kjölfarið á þessu máli með það fyrir augum að það endurtaki sig ekki.

Ljóst er að tilkoma gervigreindar hefur í för með sér aukna hættu á ýmis konar fölsunum, falsfréttum og röngum sakargiftum og þurfa allir að hafa varann á gagnvart slíku athæfi. Þar er lögreglan ekki undanskilin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“