fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 28. júní 2025 14:30

Frá Neskaupstað. Mynd: Austurland.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greint var frá því í fjölmiðlum í vikunni að par á Austurlandi hefði verið ákært fyrir að frelsissvipta dreng í kjölfar bjölluats. Konan sem kom við sögu var skömmu síðar kærð fyrir ofbeldi gegn barni eftir atvik á leikskóla þar sem hún starfaði. Lét hún af störfum í kjölfarið.

Sjá einnig: Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum

Austurfrétt greindi fyrst ákærunni í bjölluatsmálinu. „Maðurinn náði taki á úlpu drengsins og dró hann inn í húsið. Þar var drengnum haldið í nokkrar mínútur þar sem vinir hans komu til baka til að sækja hann, þótt hann bæði ítrekað um að fá að fara,“ segir í frétt austfirska fjölmiðilsins.

Maðurinn er ákærður fyrir brot gegn ákvæði um frelsissviptingu og hann og konan eru ákærð fyrir brot gegn barnaverndarlögum.

„Samkvæmt lýsingu saksóknara sýndi maðurinn af sér yfirgang og ruddaskap ásamt ógnandi og vanvirðandi hegðun en barnið meiddist á hálsi. Konan er ákærð fyrir hlutdeild í broti mannsins með að taka á móti þeim og hleypa barninu ekki út,“ segir ennfremur í frétt Austufréttar.

Foreldrar drengsins gera kröfu um hálfa milljón króna í miskabætur.

Sökuð um ofbeldi gegn barni á leikskóla skömmu síðar

Atvikin sem hér um ræðir áttu sér stað á Neskaupstað árið 2024. Skömmu eftir atvikið hér að ofan varð uppákoma á leikskóla þar sem konan starfaði, sem leiddi til þess að hún missti starf sitt og var kærð til lögreglu.

Móðir barnsins, sem var meintur þolandi konunnar, hefur rætt við DV um málið en hún er afar ósátt við hvernig yfirvöld í bæjarfélaginu tóku á því. Konan lýsir atvikinu þannig:

„Þann 15. apríl 2024, rúmum hálftíma eftir að barnið mitt kom á leikskólann, þá var hann ásamt tveimur öðrum börnum að leika sér. Þá kemur hún að honum og ýtir syni mínum til að stoppa leikinn en kann skall í gólfið. Sonur minn bregst þannig við að hann bítur hana og þá slær hún hann af krafti í andlitið, með þeim afleiðingum að hann varð rauður á kinn, auga og eyra.“

Móðirin segir að konunni hafi ekki verið sagt upp en henni hafi verið gefinn kostur á því að segja upp sjálf, sem hún hafi gert. Málið var tilkynnt til barnaverndar sem ekki hafi aðhafst í því og hafi ekki tilkynnt málið til lögreglu. Móðirin kærði málið hins vegar sjálf til lögreglu í fyrra en lítið er að frétta af rannsókninni, enn sem komið er. „Ég hef ekki fengið nein svör ennþá, málið er líklega enn í vinnslu hjá þeim.“

„Þessu máli var algjörlega sópað undir teppið, það átti ekki að tala um þetta,“ segir móðirin, sem hefur heimildir fyrir því að málið hafi ekkert verið rætt á leikskólanum.

Málinu lokið án þess að barnið fengi hjálp

Konan er ósátt við að ekki var unnið betur úr málinu af hálfu bæjarfélagsins og hún er sérstaklega ósátt við að Fjarðabyggð neitaði að taka þátt í kostnaði við listmeðferð í því skyni að hjálpa barninu að takast á við afleiðingar árásarinnar:

„Þegar frá leið fengum við að hitta barnasálfræðing sem hjálpaði okkur að vinna með hann, því honum fór verulega aftur í hegðun eftir þetta, sem við vorum búin að vinna mikið í, í samstarfi við sprett-teymi sem er í Fjarðabyggð. Sálfræðingurinn var nokkuð viss um að Fjarðabyggð gæti tekið þátt í kostnaði við listmeðferðarnámskeið fyrir börn, sem haldið er á Egilsstöðum, þetta er niðurgreitt af mörgum öðrum sveitarfélögum á Íslandi. Ég fékk þvert nei á það, Fjarðabyggð niðurgreiðir ekki slíkt, þó að þessi uppákoma hafi orðið inni á leikskóla sem bæjarfélagið rekur. Þessi uppákoma var tilkynnt til barnaverndar sem ákvað að athafast ekkert frekar í málinu, þar var því lokið án þess að hjálpa barninu mínu á nokkurn hátt að takast á við þetta ofbeldi sem hann varð fyrir.“

DV hefur afrit af tölvupóstsamskiptum sem sýna að Fjarðabyggð neitaði að niðurgreiða þátttöku drengsins í listmeðferð.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Í gær

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“