fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. júní 2025 18:30

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Austfirskt par hefur verið ákært vegna viðbragða þeirra við bjölluatri drengja. Náðu þau einum drengnum sem var að gera bjölluat hjá þeim og héldu honum nauðugum á heimili þeirra í nokkrar mínútur.

Austurfrétt greinir frá þessu. „Maðurinn náði taki á úlpu drengsins og dró hann inn í húsið. Þar var drengnum haldið í nokkrar mínútur þar sem vinir hans komu til baka til að sækja hann, þótt hann bæði ítrekað um að fá að fara,“ segir í frétt austfirska fjölmiðilsins.

Maðurinn er ákærður fyrir brot gegn ákvæði um frelsissviptingu og hann og konan eru ákgærð fyrir brot gegn barnaverndarlögum.

„Samkvæmt lýsingu saksóknara sýndi maðurinn af sér yfirgang og ruddaskap ásamt ógnandi og vanvirðandi hegðun en barnið meiddist á hálsi. Konan er ákærð fyrir hlutdeild í broti mannsins með að taka á móti þeim og hleypa barninu ekki út,“ segir ennfremur í fréttinni.

Foreldrar drengsins gera kröfu um hálfa milljón króna í miskabætur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa