fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Fréttir

„Það sem særir réttlætiskennd mína mest er að þetta eru ríkisreknar ofsóknir“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. júní 2025 11:00

Þor­vald­ur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi bankastjóri Saga Capital. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var reytt svo hátt til höggs að menn urðu eftir fimm ára rannsókn að gera eitt­hvað,“

seg­ir Þor­vald­ur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi bankastjóri Saga Capital. Þorvaldur var með réttarstöðu sakbornings í áratug á meðan sérstakur saksóknari rannsakaði hann.

Þorvaldur sem viðskiptavinur Glitnis var sakaður um að hafa valdið bankanum tjóni. Þorvaldur fékk að lokum 12 mánaða skil­orðsbund­inn dóm fyr­ir hlut­deild í umboðssvik­um í svo­kölluðu Stím-máli, heil­um ára­tug eft­ir hús­leit og hand­töku. Þorvaldur hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu og leitaði réttar síns hjá Mannréttindadómstóli Evrópu, niðurstöðu er að vænta á næstu mánuðum.

Þorvaldur ræðir ára­langa málsmeðferð sína í kjöl­far banka­hruns­ins og bein­ir þung­um ávirðing­um að embætti sér­staks sak­sókn­ara í Spjalinu með Frosta Logasyni.

„Við reyndum að útskýra þetta fyrir sérstökum að við höfðum annarra hagsmuna að gæta, við vorum viðskiptavinir Glitnis og hvernig í ósköpunum þetta væri saknæmt. Svo ég vitni aftur í sérálit dómara sem vildi sýkna, það voru engin gögn eða vitnisburður sem benti til þess að við hefðum gert nokkuð saknæmt. Út af þessum ástæðum hef ég haldið áfram að tuddast í því að hafa það sem rétt er rétt og halda því á lofti að menn fóru algjörlega fram úr sér í málatilbúnaði og síðan í rannsóknum og starfsaðferðum við það að búa til sakamenn úr blásaklausu fólki.

Ég hef haldið áfram að þessu að vera leiðinlegasti maður á Íslandi á Facebook. Svo ég geri grín að sjálfum mér líka. Vegna þess að ég vil ekki að börnin mín geti lent í þessu. Ég veit alveg hvernig það er að ganga um bæinn með stimpil á bakinu um það að vera sökudólgur eða vera hérna þjófur eða einhver þrjótur. Það er ekkert grín. En þú veist, einhverjir verða að gera það og einhverjir urðu að gera það þarna. En það sem að fer eiginlega mest í taugarnar á mér er það sem særir réttlætiskennd mína mest, er að þetta eru ríkisreknar ofsóknir.“

Þorvaldur segir embætti sérstaks saksóknara hafa beitt óvönduðum og ósann­gjörn­um rann­sókn­araðferðum, þar á meðal mark­viss­um leka til fjöl­miðla, ein­hliða sönn­un­ar­færslu, óút­skýrðum hús­leit­um og ein­angr­un­ar­vist löngu eft­ir að meint brot áttu sér stað.

„Þetta er ríkisrekið ofbeldi gegn einkaaðilum, gegn einstaklingum. Og þessar ríkisreknu ofsóknir eru í rauninni, þær eru samþykktar af stjórnvöldum. Og réttlættar með því að beygja reglur, brjóta lög. Embætti sérstakt e saksóknara var sakfellt fyrir ólöglegar hleranir gagnvart mér og öðrum manni. Ég er ekki einn. Svo er náttúrulega líka það sem ég hef verið að segja varðandi það hvernig málatilbúnaðurinn var. Embættið gerði allt til að halda raungögnum eða gögnum sem að bentu í aðra átt en þeir vildu sjá frá málum.

„Rétt­ar­rík­inu var fórnað fyr­ir póli­tíska hags­muni.“

Þor­vald­ur full­yrðir að gögn sem hefðu getað sýnt fram á sak­leysi hans ýmist verið týnd, horfið úr gögn­um máls­ins eða verið meðvitað haldið frá mál­inu með dóms­úrsk­urði.

„Við vissum að það væru til staðar gögn sem myndu geta sýnt fram á að þetta væri rangt sem að sérstakur héldi fram. Við vissum að þessi gögn eru þarna til staðar og svo kom sérstakur til okkar og sagði nei, því miður gögnin eru týnd. Eða þau glutruðust því miður niður eða svo var í einhverjum tilvikum þar sem að sko gögnunum var haldið frá máli með dómi. Og sá sem að stimplar upp á það að halda gögnum frá málinu var sami dómari og var síðan að dæma málið. Hvernig sko, ég ætla, við í mínum huga stenst þetta ekki nokkra skoðun.“

Þor­vald­ur segir að dag­bæk­ur hans, sem hefðu getað varpað ljósi á starfs­hætti hans, hafi ekki verið tekn­ar af yf­ir­völd­um í hús­leit. Hann hafi síðar af­hent þær sjálf­ur og seg­ir að hann hafi ekk­ert haft að fela.

„Ég vil ekki að börn­in mín þurfi að ganga í gegn­um þetta. Við get­um öll verið breysk og mann­leg. Kerfið okkar, því miður, er breyskara og mannlegra en maður vildi hafa það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Stöð 2 og Vodafone kveðja – Svona verða breytingarnar

Stöð 2 og Vodafone kveðja – Svona verða breytingarnar
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Daníel Kári: „Þetta er ekki frábær staða“ – Opnun Starbucks frestast

Daníel Kári: „Þetta er ekki frábær staða“ – Opnun Starbucks frestast
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Skatturinn trúði því ekki að heimavinnandi húsmóðir hafi verið tekjulaus

Skatturinn trúði því ekki að heimavinnandi húsmóðir hafi verið tekjulaus
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Segja vangreiðslugjöld ólögmæt – Kalla eftir skýrum reglum til að koma böndum á bílastæðabraskið

Segja vangreiðslugjöld ólögmæt – Kalla eftir skýrum reglum til að koma böndum á bílastæðabraskið
Fréttir
Í gær

Úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir – Najeb gerðist sekur um nauðgun gegn 14 ára stúlku

Úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir – Najeb gerðist sekur um nauðgun gegn 14 ára stúlku
Fréttir
Í gær

Íslensk börn komast ekki á leikvelli út af ferðamönnum – „Mér finnst þetta alveg ótrúlega dónalegt“

Íslensk börn komast ekki á leikvelli út af ferðamönnum – „Mér finnst þetta alveg ótrúlega dónalegt“