Elon Musk, ríkasti maður heims, er sagður hafa „rúgbí-tæklað“ Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, þegar uop úr sauð milli þeirra á dögunum. Fjármálaráðherrann á að hafa svarað í sömu mynt og mennirnir síðan skipst á höggum áður en þeir voru aðskildir. Litli kærleikar eru milli Musk og Bessent en á sínum tíma var greint frá því að þeir hefðu rifist harkalega í Hvíta Húsinu vegna yfirvofandi ákvörðunar Donald Trump, Bandaríkjaforseta, um hver ætti að stýra bandaríska skattinum, IRS. Musk talaði fyrir því að Gary Shapley myndi hreppa hnossið, og virtist vera að fá það í gegn, þegar Trump tók eina af u-beygjum sínum og útnefndi Michael Faulkender, eins og Bessent hafði þrýst á.
Í kjölfarið hnakkrifustu Musk og Bessent en sá síðarnefndi sagði Musk hafa farið á bak við sig og endaði síðan með að hrauna yfir auðkýfinginn og sagði hann misheppnaðan loddara sem hefði ekki staði við sitt varðandi árangurinn af niðurskurðadeildinni Doge sem Musk stýrði um skeið
Steve Bannon, fyrrum aðalráðgjafi Trump, greinir frá því í viðtali að Musk hafi brjálast við þessi orð og tæklað Bessent með fyrrnefndum hætti fyrir framan skrifstofu Bandaríkjaforseta í Hvíta hússinu. Högg flugu í kjölfarið þar til mennirnir voru aðskildir.
Fylgir sögunni að Trump hafi verið afar ósáttur þegar hann heyrði af slagsmálunum og hafi atvikið verið eitt af mörgum sem gerði það að verkum að fyrrum samherjarnir fjarlægðust.
Eins og alþjóð veit hnakkrifust Trump og Musk á samfélagsmiðlum á fimmtudaginn. Þung orð voru látin falla en nýjustu fregnir herma að Musk dauðsjái eftir uppþotinu þó að hann vilji meina að Trump hafi fyrst gert það persónulegt. Er Musk sagður reyna að leita leiða til að bæta fyrir syndir sínar en ólíklegt sé að Trump sé tilbúinn að fyrirgefa honum. Þá hótaði hann Musk skelfilegum afleiðingum ef hann myndi ákveða að snúa sér að Demókrötum í framtíðinni.
Ljóst er að Rússum leiðist ekki ringulreiðin í Bandaríkjunum og þeir nudduðu salti í sárið með því að bjóða Errol Musk, föður Elon, á ráðstefnu í Moskvu. Samband feðganna er stormasamt í meira lagi og hefur Elon sagt föður sinn vera hræðilega manneskju. Errol fór mikinn á ráðstefnunni og sagði son sinn vera með áfallastreituröskun eftir tíma sinn í Hvíta Húsinu. Álagið á Elon hafi verið gríðarlegt undanfarna mánuði og að það hafi verið mistök að styðja Trump í forsetastól.