fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Fréttir

Skotið fast á Audda Blö vegna troðningsins um helgina – „Bad lúkk að vera að monta sig“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 2. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og fram hefur komið varð mikill troðningur um helgina á tónleikum í Laugardalshöll sem haldnir voru vegna afmælis útvarpsþáttarins FM95BLÖ, með þeim afleiðingum að margir slösuðust. Tónleikahaldararnir hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir skipulagsleysi og fullyrt hefur verið að litlu hafi mátt muna að enn verr færi. Einn af þeim sem kom fram á tónleikunum, Auðunn Blöndal, sem þátturinn er kenndur við, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann þakkaði kærlega fyrir og sagði að hann og aðrir sem fram komu hafi notið hverrar mínútu. Bætti hann hann síðan við að glatað væri að fólk hefði meitt sig. Þykir sumum sem hafa tjáð sig um yfirlýsinguna hún vera í vægari kantinum miðað við um hversu alvarlegan atburð var að ræða. Reyndir tónleikahaldarar gagnrýna skipulagsleysið harðlega en einn af þeim sem kom að skipulagningunni vísar ábyrgðinni alfarið á fyrirtækið sem sá um öryggisgæsluna.

Auðunn gaf yfirlýsinguna út á Instagram:

„Takk fyrir gærkvöldið elsku vinir. Þetta var langstærsta giggið á okkar ferli og við nutum hverrar mínútu með ykkur. Okkur finnst glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig eða orðið fyrir vondri reynslu. Það var sannarlega ekki meiningin. Þeir sem okkur þekkja vita að það eina sem vakir fyrir okkur er að skemmta fólki.“

S/O

Í athugasemdum við yfirlýsinguna ber lítið á gagnrýni í garð Auðuns og annarra liðsmanna þáttarins en þó er a.m.k. eitt dæmi:

„Fóru ekki einhverjir á gjörgæslu? Kannski að gefa s/o (e. shoutout, innsk. DV) á þá sem slösuðust og sjá hvort allir séu í lagi.“

Meira ber hins vegar á gagnrýni á orðalag yfirlýsingarinnar í ummælum á samfélagsmiðlinum Reddit:

„Líka glatað að heyra að þeir labba frá þessum með vasa troðfulla af pening.“

„Að fullorðnir menn geti ekki tekið ábyrgð súmmerar upp þetta þjóðfélag ansi vel.“

„Tja, er þetta ekki bara on brand? Þetta eru miðaldra menn sem að hafa atvinnu af að haga sér eins og unglingar.“

,,Sorry að fólk slasaðist og upplifði mikið stress og hræðslu, en þetta var GEGGJAÐ kvöld fyrir okkur þrjá.“

„150m (milljónir, innsk. DV) í tekjur fyrir miðasölu… Ætli hver þeirra þriggja hafi ekki komið út með lágmark 20m  fyrir kvöldið.“

Lélegt PR

Í einum ummælum eru viðbrögð bæði Auðuns og skipuleggjenda tónleikanna, Nordic Live Events, gagnrýnd:

„Ef þú ætlar að vera með lélega gæslu, skipulag og öryggi þarftu að gefa í PR-megin ef allt fer í fokk, ekki vera með svona „sorrý að þið upplifðuð þetta svona“ linkind og að svara engum fjölmiðlum hef ekki séð neina yfirlýsingu sem gefur til kynna að það sé einhver sem getur tekið ábyrgð á þessu og komið í veg fyrir svona öryggisógnir á framtíðar viðburðum.“

„Er ekki ástæða fyrir því að ráðið er fólk til starfa við skipulagningu á svona viðburðum sem veit hvað það er að gera? Ætla að skjóta á að þeir hafi ákveðið að spara sér einhverja hundraðþúsundkalla í launakostnað og þetta er útkoman.“

„Bad lúkk að vera að monta sig á hvað þetta voru stórir tónleikar þegar fólk hefði getað dáið.“

Reyndir menn tjá sig

Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa tónleikahaldaranna eru aðrir sem hafa mikla reynslu af tónleikahaldi til að mynda Ísleifur Þórhallsson hjá Senu en einnig hefur Jón Bjarni Steinsson sem hélt í þó nokkur skipti, ásamt fleirum, tónlistarhátíðina Secret Solstice í Laugardal lagt orð í belg í umræðum á Facebook:

„Það sem hefur angrað mig mest er þetta að „tónleikahaldarar þurfi að læra af þessu“. Hverjir þá? Varla þeir sem hafa margoft haldið þarna stóra viðburði stórslysalaust? Ég persónulega skil ekki hvernig þetta gat gerst – það er eins og sneitt hafi verið framhjá hverjum þeim hérlendis sem hefur komið að því að skipuleggja öryggi gesta á svona viðburðum. Það klikkaði ekki bara eitt heldur allt sem gat klikkað.“

Hrannar Hafsteinsson hefur einnig nokkra reynslu af tónleikahaldi en hann skrifar meðal annars á Facebook:

„Hvers vegna var enginn þarna sem gerði athugasemdir við skipulagninguna og stoppaði hann af? Í fréttum kemur fram að lögreglan hafi gert kröfu um 65 manns í gæslu en viðburðarhaldari hafi fjölgað í 75, sá hefur haldið viðburði áður og á því að vita að þessi reglugerð um fjölda í gæslu er röng/úrelt. Til að nefna dæmi þá voru 10.000 gestir á Backstreet Boys og vorum við þá með um 140 manns í gæslu. Á þeim viðburðum sem ég hef skipulagt, og hafa verið með 10.000 gesti eða fleiri, höfum við alltaf sett upp aðgerðarstjórnarrými … í gærkvöldi (laugardagskvöldið, innsk. DV) var þetta rými ekki sett upp, sem er stór galið.“

Vísað annað

Meðal þeirra sem kom að skipulagningu tónleikanna um helgina er Franz Gunnarsson en hann segir fyrirtækið sem sá um öryggisgsæluna bera ábyrgðina á troðningnum og þar með því hættuástandi sem skapaðist. Hann skrifar á Facebook:

„Ég var ráðinn inn í verkefnið til að hafa umsjón með skipulagningu dagskrár, samskiptum varðandi tæknimál, umboðsmenn, listafólk og annað tilfallandi. Ég sat fundi með lögreglunni um öryggismál, en að öðru leyti voru öryggismálin alfarið í höndum Icelandic Security, sem fullvissaði skipuleggjendur um að gæslan yrði meiri en lögreglan krafðist til að uppfylla skilyrði. Það er ömurlegt að þessi öryggisbrestur kom upp og ég fagna því að farið verði yfir þetta atvik í þaula með öllum viðeigandi aðilum. Þess ber að hafa í huga að öll leyfi voru til staðar fyrir þennan viðburð og – fyrir utan þetta atvik, sem stóð í um 30 mínútur, ásamt einhverjum pústrum – þá voru rúmlega 9.000 manns í húsi sem rúmar 11.000, að skemmta sér vel í átta tíma prógrammi.“

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Leggur til tvöfalt kerfi – „Engin glóra í því að biðlistar styttist bara með því að fólk deyi á þeim“

Leggur til tvöfalt kerfi – „Engin glóra í því að biðlistar styttist bara með því að fólk deyi á þeim“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Miðflokksmaður segir hörmulegan atburð hafa átt sér stað í flugstöðinni – „Mistök er hægt að leiðrétta“

Miðflokksmaður segir hörmulegan atburð hafa átt sér stað í flugstöðinni – „Mistök er hægt að leiðrétta“
Fréttir
Í gær

Höskuldur rakst á vegg í Héraðsdómi – Áminningin stendur óhögguð

Höskuldur rakst á vegg í Héraðsdómi – Áminningin stendur óhögguð
Fréttir
Í gær

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björgólfur Thor svarar fyrir meintar njósnir – „Það kom ekkert út úr þessu verkefni“

Björgólfur Thor svarar fyrir meintar njósnir – „Það kom ekkert út úr þessu verkefni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sema Erla birtir skjáskot af hatursorðræðu í hennar garð – „Óvinur samfélagsins“

Sema Erla birtir skjáskot af hatursorðræðu í hennar garð – „Óvinur samfélagsins“