Kólumbíski unglingurinn Oscar, sem yfirvöld útlendingamála vilja senda úr landi þó að hjónin Svavar Jóhannsson og Sonja Magnúsdóttir vilji ala hann upp sem sinn eigin son og veita honum kærleika og gott atlæti, verður fluttur nauðungarflutningi úr landi næstkomandi þriðjudag, þann 3. júní.
Frá þessu greinir fósturfaðir Oscars, Svavar Jóhannsson, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Svavar er harmi sleginn og þungorður í færslu sinni og segir kerfið ómannúðlegt.
„Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð um það að það væri búið að setja dagsetningu á þriðjudaginn 3. júní og þá verður Oscar fluttur til keflavíkur og sendur til Bogota. BOFS (Barna og fjölskyldustofa) hefði getað stöðvað brottflutninginn en ákvað á fundi sínum á mánudag að það sé ekki ástæða til að vernda 17 ára fylgdarlausan dreng á flótta! Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa líka haft marga mánuði til að grípa inn í en ákváðu líka að standa aðgerðarlausir hjá og samþykkja ákvörðum ÚTL að Oscar beri ekki að vernda. Við fjölskyldan höfum ákveðið að njóta síðustu daganna með drengnum okkar og gera sem mest úr þeim. Við ætlum ekki að eyða þeim í frekari baráttu við þetta ofurefli sem við er að eiga og hefur tekist að leggja líf okkar allra í rúst. Okkur hafði aldrei dottið í hug grimmdin, mótspyrnan og offorsið sem þessi ungi drengur hefur mætt hjá íslenskum stjórnvöldum fyrir þær einu sakir að vilja eignast öruggt líf á Íslandi með vinum sínum, fósturforeldrum, systkinum og fjölskyldu sem hann hefur eignast og umvafið sem sína eigin.“
Svavar segir að kerfið verji sig með kjafti og klóm ætli ekki að láta millistéttarhjón úr Hafnarfirði komast upp með neitt múður. Hann þakkar öllum sem veit hafa fjölskyldunni stuðning:
„Við höfum komist að því af sárri reynslu að kerfið sér um sig og bregst við af fullu afli og tortímir öllum þeim sem dirfast að ógna því. Kannski hefði Oscar átt meiri möguleika ef hann hefði staðið einn en ekki haft okkur til að berjast fyrir rétti sínum. Það var greinilegt frá byrjun að kerfið ætlaði ekki að láta einhver millistéttarhjón úr Hafnarfirði ná að beygja sig og þegar ég hugsa til baka voru skilaboðin frá ÚTL og öllu kerfinu til okkar hjóna skýr allan tímann. „ÞIÐ SKULUÐ EKKI FÁ AÐ SKIPTA YKKUR AF ÞVÍ HVERNIG VIÐ FÖRUM MEÐ OKKAR FYLGDARLAUSU BÖRN OG ANNAÐ FLÓTTAFÓLK“ Það er sorglegt að staðan sé orðin sú að æðstu ráðamenn íslensku þjóðarinnar láti grímulaust brjóta á erlendu barni til þess eins að þóknast sínum almestu harðkjarna kjósendum. Það minnir mig því miður óþægilega mikið á það sem er að gerast vestan atlantsála eftir að nýr leiðtogi tók þar við völdum. Þetta eru ekki leiðtogarnir sem ég kaus og þetta er heldur ekki þjóðfélagið sem ég vil búa í. Þetta er sorgardagur fyrir Oscar og fyrir alla okkar stórfjölskyldu og vini en ekki síður fyrir íslenskt þjóðfélag, réttarfar og stjórnkerfi almennt. Ef ætlunin var að senda skýr og kröftug skilaboð til Oscars, okkar hjóna og um leið annarra sem dirfast að gagnrýna eða standa uppi í hárinu á ÚTL og öðrum stofnunum ríkisins… Þá held ég að það hafi rækilega tekist og vonandi eru hlutaðeigandi ánægðir með vel unnið dagsverk! En þeim get ég samt sagt að með þessari aðgerð sinni eða öllu heldur aðgerðarleysi gerðu þeir Íslandi og orðspori þess sem velferðar og réttlætisþjóð um allan heim mikinn óleik. Að senda 17 ára dreng sem grátbiður um hjálp út á guð og gaddinn og mjög hugsanlega út í opinn dauðann, verður smánarblettur á okkar stjórnkerfi um langa tíð.
Við hjónin, Oscar og fjölskyldan öll viljum af öllu hjarta þakka þeim þúsundum sem studdu okkar með samtölum, kveðjum á facebook, símtölum og með því að mæta og mótmæla með okkur. Það hefur gefið okkur ómetanlegan styrk að finna að við áttum gríðarlegan stuðning hjá stórum hluta þjóðarinnar úr öllum flokkum og frá fólki með alls konar stjórnmálaskoðanir. Mál Oscars sameinaði okkur öll í baráttunni fyrir réttlæti og manngæsku sem okkur öllum er annt um fyrir hönd okkar sjálfra, barna okkar og framtíðar okkar lands. Án ykkar stuðnings hefðum við Sonja, Oscar og börn okkar brotnað fyrir löngu síðan.
Með kærri kveðju og ástarþökkum til ykkar allra fyrir allt saman“