Ólafur Jóhann Ólafsson hefur skrifað nýtt leikrit fyrir Þjóðleikhúsið sem Baltasar Kormákur mun leikstýra. Leikritið, sem ber heitið Íbúð 10B, kemur í kjölfar kvikmyndarinnar Snertingar, sem hefur notið mikillar hylli. Þeir Ólafur og Baltasar eiga báðir magnaðan feril að baki um allan heim. Bækur Ólafs Jóhanns hafa notið mikilla vinsælda jafnt hér heima sem utan landsteinanna og kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir Baltasars hafa notið vinsælda og sópað að sér verðlaunum víða um heiminn. Þetta er fyrsta sýning Baltasars í leikhúsi um árabil en hann hefur áður meðal annars sett upp rómaðar og margverðlaunaðar sýningar í Þjóðleikhúsinu.
Í tilkynningu á vef Þjóðleikhússins kemur fram að leikritið Íbúð 10B er ögrandi og meinfyndið verk beint úr íslenskum samtíma. Einn eigenda í glæsilegu fjölbýlishúsi í Reykjavík hefur ákveðið að breyta lúxusíbúð sinni í gistiheimili fyrir hælisleitendur. Nokkrir íbúar í húsinu ákveða að hittast til að leggja á ráðin um viðbrögð við þessari óvenjulegu stöðu. Á borðum eru góðir ostar og vín, en notaleg kvöldstund snýst brátt upp í harðvítug átök þar sem lögmál frumskógarins gilda undir kurteislegu yfirborðinu.
Meðal leikara í sýningunni eru Björn Thors, Nína Dögg Filippusdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Saga Garðarsdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Baltasar Kormákur leikstýrir, Ilmur Stefánsdóttir hannar leikmynd, Sunneva Ása Weisshappel búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsingu.
Meðal leikrita Ólafs Jóhanns eru Rakstur í Þjóðleikhúsinu 2003, Fjögur hjörtu í Loftkastalanum 1997 og leikgerð Sniglaveislunnar hjá Leikfélagi Akureyrar 2001. Meðal rómaðra leikstjórnarverkefna Baltasars Kormáks í Þjóðleikhúsinu eru Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov, Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT og Draumur á Jónsmessunótt, en hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut.
Að sögn Magnúsar Geirs Þórðarsonar þjóðleikhússtjóra er það mikið tilhlökkunarefni að fá nýtt leikrit Ólafs Jóhanns á svið í Þjóðleikhúsinu og Baltasar Kormák í leikstjórastólinn að nýju. „Íbúð 10B er frábærlega skrifað leikrit sem er óvænt, fyndið og beitt. Það talar til okkar í dag og í meðförum Baltasars og okkar frábæra leikhúss er ég sannfærður um að það mun hrífa áhorfendur á ólíkum aldri. Það er líka einstaklega ánægjulegt að Baltasar leikstýri nú loks á ný í leikhúsi en hann er meðal okkar allra fremstu leikstjóra. Hans fyrri sýningar eru ógleymanlegar. Að sama skapi er Ólafur Jóhann í hópi okkar ástsælustu höfunda og sýnir hér á sér nýjar og óvæntar hliðar.”
Baltasar Kormákur, sem hefur verið einn áhrifamesti kvikmyndaleikstjóri landsins um árabil, tekur í sama streng og Magnús Geir. „Rætur mínar í leikhúsinu eru sterkar og það er spennandi að halda áfram samstarfi okkar Ólafs Jóhanns, nú í leikhúsinu. Verkið er líka það gott að ég bara stenst ekki mátið. Svo fannst mér bara réttur tími að koma aftur í leikhúsið.“
Ólafur Jóhann hlakkar til að starfa í leikhúsi að nýju. „Ég hef haft ákaflega gaman af samvinnu við leikhúsfólk og hlakka til að sjá Íbúð 10B á Stóra sviði Þjóðleikhússins í meðförum þeirra frábæru listamanna sem að því koma. Ekki er langt síðan við Baltasar unnum saman að mynd hans Snertingu og var það samstarf eins og best verður á kosið. Það er tilhlökkun að hefja nýja vegferð með honum, leikhópnum og listrænum stjórnendum enda valinn maður í hverju rúmi.“