fbpx
Miðvikudagur 29.október 2025
Fréttir

Forseti Íslands setur Stóra plokkdaginn á sunnudaginn

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 21. apríl 2025 17:38

Mynd: Mummi Lú

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir mun setja Stóra Plokkdagurinn sem verður haldinn um allt land á sunnudaginn kemur 27. apríl. Setning Stóra Plokkdagsins verður við Sorpu í Breiðholti og eru öll hvött til að koma og taka þátt í opnunarviðburðinum og sérstaklega íbúam í Breiðholti. Forseti Íslands og forseti Rótarý hreyfingarinnar Jón Karl Ólafsson setja daginn formlega. Félagar úr Rótarý hreyfingunni og meðlimir í Plokk á Íslandi verða þeim til halds og trausts. Sérstakur gestur setningarinnar verður Elín Birna plokkari frá Eyrarbakka ásamt fleirum í hennar deild sem hjálpa nýliðum af stað í sportinu. Það er Rótarýhreyfingin í samstarfi við Landsvirkjun og Umhverfisráðuneytið sem stendur fyrir Stóra Plokkdeginum.

Fyrsti Stóri plokkdagurinn var haldinn árið 2018 en síðan hefur þessum hátíðisdegi umhverfis og snyrtimennsku vaxið ásmegin við hvert ár sem líður. Um átta þúsund manns eru þátttakendur í Facebook samfélaginu Plokk á Íslandi, en þar deilir fólk sigurfréttum af átökum sínum við ruslaskrímslið. Öllum sem skipuleggja viðburði í kringum daginn er heimilt að nota merki dagsins og myndefni tengt honum til kynningar á verkefnum tengdum plokki og umhverfishreinsun.

Þá fagnar SORPA plokkurum á endurvinnslustöðvum sínum og er öllum velkomið að koma með afrakstur plokksins til þeirra í kjölfar dagsins. Þá tekur Reykjavíkurborg við ábendingum á sunnudaginn um hvert sækja megi plokkað rusl í síma 411-8440. Einnig er gott að senda ábendingar um hvar ruslapoka er að finna á ábendingavef borgarinnar. Bílar á vegum borgarinnar verða á ferðinni til að sækja poka frá plokkurum. Fleiri sveitarfélög bjóða upp á svipaða eða sambærilega þjónustu og hægt er að kynna sér það á vef viðkomandi sveitarfélaga eða samfélagsmiðla.

Þau sem ætla að skipuleggja plokk viðburð á Stóra plokkdaginn er bent á að senda upplýsingar á plokk@plokk.is svo hægt sé að geta hans í dagskrá dagsins. Einnig má tengja viðburði á Facebook við Stóra plokkdaginn á samfélagsmiðlinum og gera hann þannig að opinberum þátttakanda í dagskránni.

Myndirnar sem fylgja hér með tók Mummi Lú á Stóra Plokkdeginum 2024 þegar þáverandi Forseti Íslands, þáverandi umhverfisráðherra og verðandi Biskup Íslands ræstu Stóra Plokkdaginn við Gullinbrú ásamt forseta Rótarý hreyfingarinnar Ómari Stefánssyni og verðandi forseta hennar Jóni Karli Ólafssyni og félögum í hreyfingunni.

Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Lést í Bláa lóninu
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir Sigríði hafa brotið ýmsar reglur með viðskiptunum við Þórunni

Segir Sigríði hafa brotið ýmsar reglur með viðskiptunum við Þórunni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mikilvæg tilkynning frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu – „Þrátt fyrir aðvaranir hefur borið mikið á því í dag“

Mikilvæg tilkynning frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu – „Þrátt fyrir aðvaranir hefur borið mikið á því í dag“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Græna gímaldið verður klárað og fær að standa áfram

Græna gímaldið verður klárað og fær að standa áfram
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hjálmar sakfelldur í þriðja sinn fyrir skattsvik en dómari hafnaði kröfu um atvinnurekstrarbann

Hjálmar sakfelldur í þriðja sinn fyrir skattsvik en dómari hafnaði kröfu um atvinnurekstrarbann
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Reykjavík nefnd sem dæmi um borg sem fær mikið hrós þrátt fyrir að lítið sé um að vera þar

Reykjavík nefnd sem dæmi um borg sem fær mikið hrós þrátt fyrir að lítið sé um að vera þar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Miklar tafir á stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins

Miklar tafir á stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins