fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Barnslátið á Krýsuvíkursvæðinu: Faðirinn með dóma að baki og lýst hefur verið eftir honum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 16. september 2024 15:21

Nærri rannsóknarvettvangi lögreglu, skammt norðan við Kleifarvatn. Mynd: Skjáskot/Google Earth.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa banað tíu ára gamalli dóttur sinni, hefur áður komið við sögu lögreglu. Árið 2007 var hann sakfelldur fyrir innflutning á kókaíni í sölu- og dreifingarskyni.

Hann var síðan í fréttum í maímánuði síðastliðnum er lögregla lýsti eftir honum. Kom þá fram að síðast hefði verið vitað um ferðir hans í Grafarvogi. Maðurinn er búsettur í því hverfi.

Maðurinn er á fimmtugsaldri. Stúlkan sem lést er fædd árið 2014.

Ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum en það er talið líklegt. Verður ákvörðun um það tekin síðar í dag. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði í viðtali við DV fyrr í dag, að of snemmt væri að fullyrða að lögregla væri komin með skýra mynd af atburðinum, til þess væri of skammt liðið.

Fyrir liggur hins vegar að maðurinn hafði sjálfur samband við lögreglu um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Hann var skömmu síðar handtekinn á Krýsuvíkursvæðinu. Látin dóttir hans var þar með honum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“