fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
Fréttir

Hvernig reddar maður 1.500.000 fallbyssukúlum fyrir Úkraínu? Tékkar fundu lausnina

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. apríl 2024 04:05

Úkraínskir hermenn við stórskotaliðsbyssu í Kherson. Engin eftirlíking hér á ferð. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti mikla athygli þegar Tékkar tilkynntu í fyrsta sinn að þeim hefði tekist að útvega Úkraínumönnum mörg hundruð þúsund fallbyssukúlur. Þetta gerðist á sama tíma og erfitt er að verða sér úti um skotfæri. En Tékkar komu aftur á óvart nokkrum vikum síðar og tilkynntu að þeim hefði tekist að endurtaka leikinn. En það sem margir velta fyrir sér er hvernig þeim tókst þetta?

Í fyrstu tilkynningu Tékka kom fram að þeim hefði tekist að útvega 800.000 fallbyssukúlur og að kaupin væru að fullu fjármögnuð með stuðningi ýmissa ríkja. Ekki leið á löngu þar til þeir tilkynntu um kaup á 700.000 kúlum til viðbótar.

Ætlunin er að það verði aldrei gert opinbert hvernig Tékkum tókst að útvega allar þessar fallbyssukúlur en það er samt sem áður hægt að giska á hvar þeir fengu þær.

Jótlandspósturinn ræddi við Esben Salling Larsen, hernaðarsérfræðing, um þetta og sagðist hann hafa ákveðnar hugmyndir um hvar Tékkar fengu skotfærin.

Hann sagði að kúlurnar geti skipt miklu máli og bæti við getu úkraínska hersins. Úkraínumenn segist sjálfir skjóta um 2.000 fallbyssukúlum á dag núna en vilji helst skjóta tvöfalt fleiri. Markmiðið sé að geta viðhaldið stöðugri og mikilli skothríð í langan tíma og til þess að það sé hægt þurfi að fá nýjar birgðir reglulega.

Hann benti á að Tékkarnir hafi útvegað skotfæri fyrir vestrænar fallbyssur og gamlar sovéskar sem Úkraínumenn ráði yfir.

Larsen sagði að lykilinn að kaupunum sé að finna í fortíð Úkraínu innan Sovétríkjanna og fortíð Tékklands, sem var þá hluti af Tékkóslóvakíu, á áhrifasvæði Sovétríkjanna.

Wall Street Journal segir að samkvæmt upplýsingum frá tékkneskum stjórnvöldum þá hafi landið haldið fast í vopnaiðnaðinn sem var byggður upp á tíma Sovétríkjanna auk þess sem þau hafi viðhaldið góðum tengslum við önnur ríki í heiminum sem hafi verið í svipaðri stöðu.

„Trúnaður er lykilatriðið í þessu máli. Við tölum og munum tala við alla, óháð því hver staða þeirra er eða pólitískt viðhorf, þó með ákveðnum undantekningum á borð við Norður-Kóreu,“ sagði Thomas Pojar, þjóðaröryggisráðgjafi tékknesku ríkisstjórnarinnar í samtali við Wall Street Journal.

Jan Jires, varavarnarmálaráðherra, veitti örlítið meiri upplýsingar og sagði að sum af ríkjunum sem seldu Tékkum fallbyssukúlurnar séu eiginlega bandalagsríki Rússlands en séu reiðubúin til viðskipta við Tékka sem millilið gegn því að þeir tryggi að Rússar fái ekki vitneskju um viðskiptin.

Larsen sagðist hafa ákveðnar hugmyndir um hvaða ríki geti átt í hlut, þetta séu þó aðeins hugmyndir hans sjálfs. Pakistan sé eitt þessara ríkja því það framleiði skotfæri eins og Úkraínumenn nota. Indland komi einnig til greina sem og Egyptaland en bæði þessi ríki eigi mikið magn skotfæra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þurfti að fara í hart eftir að húðflúrarinn neitaði að ljúka verkinu

Þurfti að fara í hart eftir að húðflúrarinn neitaði að ljúka verkinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“