fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Varpa ljósi á sögu mannsins sem hótaði að stökkva – „Það var ekkert plan, við byrjuðum bara að kalla“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 27. mars 2024 08:59

Skjáskot/RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvað fær ungan mann til að klifra utan á þingpöllunum frammi fyrir fullum þingsal? Hver er það sem hrópar: Þið hafið steinhjarta? Og af hverju?“

Svona hefst pistill Guðrúnar Árnadóttur, Guðrúnar Töru Sveinsdóttur, Heklu Kollmar og Þorgerðar Jörundsdóttur á Vísi. Þær varpa ljósi á sögu mannsins sem hótaði að stökkva niður af þingpöllum á Alþingi í byrjun mars þegar umræða hófst um lagafrumvarp Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um útlendingamál.

Í pistlinum fara konurnar fjórar yfir málið.

„Undanfarna sjö mánuði hefur rúmur tugur flóttamanna dvalið í neyðarskýli Rauða krossins. Flest hafa þau búið á Íslandi um árabil. Mörg hafa stundað nám, lært íslensku, eignast vini, fest hér einhverskonar rætur eftir rótlaust líf á flótta undan ofbeldi, stríði, ofsóknum og neyð.

Þegar ný útlendingalög tóku gildi í ágúst 2023 var þessum hópi vísað á götuna. Fólkið átti það sameiginlegt að vera hvergi með hæli og að ekki var hægt að brottvísa því til heimalandsins þar sem ekki er framsalssamningur á milli allra landa. Nýju lögin gerðu yfirvöldum kleift að svipta fólkið allri grunnþjónustu. Svipta þau húsnæði, framfærslu, læknisþjónustu – öllu.“

„Vilja þau að við seljum okkur – aftur?“

Konurnar vísa síðan í samræður þeirra við fólkið og það sem það hefur sagt þeim um ástandið sem ríkir núna.

„- Á hverjum morgni pökkum við saman og tæmum herbergin. Ferðbúin.

-Þú gengur sama hringinn allan daginn. Frá klukkan tíu, þegar þú yfirgefur skýlið og þangað til klukkan fimm þegar það opnar aftur. Gengur bara og gengur, hring eftir hring.

-Einn okkar var fárveikur í þrjá daga núna í vetur. Hann þurfti samt að fara út eins og við hin. Fyrir klukkan tíu. Alla daga.

-Ég þarf lyf og ég neyðist til að betla fyrir þeim.

-Við förum á klósettið undir eftirliti. Öryggisvörðurinn opnar fyrir okkur og bíður fyrir utan dyrnar á meðan.

-Ég er búin að vera á blæðingum frá því í desember, kviðverkirnir eru alltaf þarna en bráðavaktin vísaði mér frá.

-Vilja þau að við seljum okkur – aftur?

-Hægt og bítandi verðum við vitstola, það berast hróp og öskur um gangana á nóttunni. Við erum öll hætt að sofa.“

Atburðurinn á Alþingi

„Uppi á svölum þingsalarins sitja þrír ungir menn sem allir dvelja í neyðarskýlinu. Þeir heita Ali, Boulbi og Lamin. Þeir eru hér til að hlusta á umræður um útlendingalög. Lög sem snerta þá. Fyrst og fremst eru þeir hér til að sjá ráðherrann, konuna sem tekur ákvarðanir um líf þeirra og örlög. Örlög sem nú þegar hanga á bláþræði,“ segja þær og vísa næst í orð Ali.

„Við vorum búnir að lesa fréttir um nýju búðirnar, fangelsin, og fórum á Alþingi klukkan þrjú. Bara til að hlusta. Þegar Guðrún (dómsmálaráðherra) byrjaði að tala í þriðja sinn brast eitthvað innra með okkur. Í okkar huga stendur hún fyrir allan þennan hrylling sem við erum að ganga í gegnum og þegar við sáum hana stíga aftur í pontu vissum við að hún myndi skaða okkur enn meira. Það var ekkert plan, við byrjuðum bara að kalla. Þið hafið steinhjarta! Þetta bara gerðist einhvern veginn. Mér flaug í hug: ef ég segist ætla að stökkva næ ég kannski athygli einhverra um stund og þá get ég reynt að sýna þessu fólki hvernig mér líður. Kannski hlustar einhver. Þið hafið steinhjarta! Ég hef aldrei gert svona. Aldrei verið svona. Þegar ég sá mig á myndbandinu trúði ég því ekki að þetta væri ég.“

„Ali stökk ekki. Hann var færður á lögreglustöðina og svo aftur í neyðarskýlið. Hann dreymir enn um framtíð, fjölskyldu, vinnu. „Mig langar að hjálpa fólki í minni stöðu.“ Lamin hikar: „Ég vona ennþá.“ Hann vonar að hann fái að vera. Að hann fái að nýta Tækniskólanámið og starfa sem smiður. Boulbi þráir að vinna. „En þetta land er búið að brjóta mig. Ég get ekki hugsað um framtíðina. Framtíðarplön eru forréttindi.““

„Þetta er ekki eðlilegt“

„Þau búa hér. Anda, lifa, ganga um bæinn á meðal okkar og með okkur. Við mætum þeim en horfum fram hjá. Sjáum þau ekki. Viljum ekki sjá þau. Viljum ekki muna eftir því sem við höfum gert. En það erum við sem komum þeim í þessar kringumstæður. Það er engum vafa undirorpið að í þessu samfélagi voru samþykkt lög sem heimila okkur að senda fólk allslaust á götuna. Við höfum ýtt þeim eins langt frá okkur og við mögulega getum. Þannig höfum við reynt svo á líkama þeirra og sál að þau eru óþekkjanleg í eigin augum og þora ekki lengur að láta sig dreyma.

En við sinnum okkar hversdegi eins og allt sé eðlilegt. Eins og það sé fullkomlega eðlilegt að svipta fólk öllu. Fullkomlega eðlilegt að sýna ekki samúð og meðalhóf. Fullkomlega eðlilegt að hér skjótum við ekki skjólshúsi yfir þolendur mansals og börn á flótta. Fullkomlega eðlilegt að hér hafi fólk búið í áraraðir án þess að fá skjól.

Fólkið í neyðarskýli Rauða krossins er hérna enn. Þau hafa ekkert farið, ekki horfið eða gengið í björg. Þau eru af holdi og blóði og innan seilingar. Við gætum gert svo miklu betur. Það er ekkert eðlilegt við þetta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“