fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Kona ákærð eftir að sauð upp úr fyrir utan Mónakó

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 21. mars 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingfest var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem héraðssaksóknari hefur höfðað gegn konu á fertugsaldri vegna atviks sem átti sér stað aðfaranótt þriðjudagsins 11. apríl 2023.

Atvikið átti sér stað utandyra við Laugaveg 78 í Reykjavík. Konan er ákærð fyrir brot gegn valdstjórninni og sökuð um að hafa slegið lögreglumann hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut af roða á hægra kinnbeini og við gagnauga.

Málið varðar við 1. málsgrein 106. greinar almennra hegningarlaga, en þar segir:

„Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta … 1) fangelsi allt að 6 árum. [Ef brot samkvæmt þessari málsgrein beinist að opinberum starfsmanni, sem að lögum hefur heimild til líkamlegrar valdbeitingar, má beita fangelsi allt að 8 árum.] 2) [Beita má sektum, ef brot er smáfellt.]“

Héraðssaksóknari krefst þess að konan væri dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar