fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Berglind segir börn fá misvísandi skilaboð um heilsu – Vill sjá þetta hverfa á íþróttaviðburðum

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 19. mars 2024 11:29

Berglind Lilja Guðlaugsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við íþróttaiðkun fá börn oft misvísandi skilaboð um heilsu þar sem þau eru hvött til að hreyfa sig sér til heilsubótar en óheilsusamlegir matarkostir blasa oft við þeim, bæði í veitingasölu og á auglýsingaskiltum í íþróttasölum. Á íþróttaviðburðum er yfirleitt mikið magn af næringarsnauðum kostum eins og bakkelsi, sælgæti og gosdrykkjum til sölu.“

Þetta kemur fram í pistli Berglindar Lilju Guðlaugsdóttur, næringarfræðings hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og aðjúnkts við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún veltir fyrir sér af hverju næringarsnauð matvæli séu í forgrunni við íþróttaiðkun barna og segir það stangast á við það sem við vitum nú þegar: Að góð næring skiptir miklu máli fyrir bæði heilsu og árangur.

„Þegar kemur að ungmennum sem taka þátt í íþróttum er góð næring sérstaklega mikilvæg þar sem börn og unglingar ganga í gegnum miklar líkamlegar breytingar og er nauðsynlegt fyrir þau að mæta næringarþörf sinni,“ skrifar Berglind í grein á Vísi sem hefur vakið þó nokkra athygli.

„Mikilvægt er fyrir börn og unglinga sem stunda íþróttir að fá réttar upplýsingar um næringu sem styður við vöxt þeirra og þroska og veitir þá viðbótarorku sem getur verið þörf á í kringum þjálfun. Ungmenni í íþróttum hafa hlutfallslega meiri þörf fyrir orku og næringarefni en fullorðnir og þarf því að tryggja að þau matvæli sem ungmennin velja sér að borða séu bæði orku- og næringarrík.“

Mikið af sælgæti og gosdrykkjum á íþróttaviðburðum

Berglind segir að það sé mikilvægt að leggja áherslu á þætti sem hafa jákvæð áhrif á lífsstíl og heilsuhegðun þar sem á þessum aldri sé fæðumynstur að mótast til framtíðar. Hún hvetur foreldra til að byrja strax og hvetja til uppbyggilegrar heilsuhegðunar snemma á lífsleiðinni svo hægt sé að byggja upp góðan grunn fyrir framtíðina.

En það er hægara sagt en gert þegar börn fá önnur skilaboð frá umhverfinu.

„Við íþróttaiðkun fá börn oft misvísandi skilaboð um heilsu þar sem þau eru hvött til að hreyfa sig sér til heilsubótar en óheilsusamlegir matarkostir blasa oft við þeim, bæði í veitingasölu og á auglýsingaskiltum í íþróttasölum. Á íþróttaviðburðum er yfirleitt mikið magn af næringarsnauðum kostum eins og bakkelsi, sælgæti og gosdrykkjum til sölu.

Þessar matvörur innihalda ekki mikið magn nauðsynlegra næringarefna fyrir litla kroppa sem eru að vaxa og þroskast. Það að næringarsnauðir kostir séu meira áberandi bæði í veitingasölum og sem auglýsingar á veggjum íþróttamiðstöðva þegar íþróttaviðburðir fyrir unga iðkendur eiga sér stað er ekki í samræmi við það hlutverk sem eðlilegt væri að fælist í íþróttastarfi með börnum sem ætti að hvetja til heilsusamlegs lífsstíls bæði hvað varðar hreyfingu og næringu.“

Fræðsla einnig mikilvæg

Berglind segir að það sé mikilvægt að börn og ungmenni hafi aðgang að hollum mat og drykk við íþróttaiðkun

„[Það] er kjörið fyrir íþróttafélög að hvetja til heilsusamlegrar næringar með því að bjóða upp á næringarríka valkosti á íþróttaviðburðum. Einnig er mikilvægt að börn í íþróttum fái fræðslu um næringarríkt, fjölbreytt og heilsusamlegt mataræði. Hins vegar dugar fræðsla oft ekki ein og sér heldur þarf einnig að taka til aðgerða á öðrum vettvangi og kemur þar umhverfið inn sem einn helsti áhrifavaldur. Með því að breyta matarumhverfinu við íþróttaiðkun barna er hægt að hafa mikil áhrif á fæðuval þeirra.“

Eldri iðkendur, þjálfarar og foreldrar eru fyrirmyndir ungmenna í íþróttum. „Við sem erum fyrirmyndir fyrir þennan hóp þurfum að hafa í huga hvað við erum sjálf að borða, hvaða mat við erum að bjóða upp á heima, í veitingasölum íþróttamiðstöðva og við æfingar og keppni ungra barna. Hér ber einnig að nefna markaðssetningu, en í mörgum tilfellum sjáum við afreksíþróttafólkið okkar auglýsa orkudrykki, gosdrykki og próteinbættar matvörur sem eru ekki æskilegar börnum í tengslum við íþróttaiðkun. Ábyrgðin liggur því víða og við þurfum að leggjast öll á eitt við að auka til muna aðgengi og sýnileika á hollri fæðu og drykkjum við íþróttaiðkun ungmenna og hvetja til heilsusamlegs lífsstíls bæði hvað varðar hreyfingu og næringu. Það ætti að vera stefna hvers íþróttafélags að styðja við heilbrigðar fæðuvenjur ungra iðkenda sinna. Ég hvet sveitarfélög og íþróttafélög til að setja sér stefnu í næringarmálum og bjóða upp á næringarrík matvæli í íþróttamiðstöðvum og á íþróttaviðburðum barna.“

Á heilsuveru er að finna ýmsar upplýsingar tengt næringu barna við íþróttaiðkun og hugmyndum af máltíðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí