fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Ármann telur að gosvirknin muni færast yfir í Eldvörp og þá geti gosin orðið lengri

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. mars 2024 09:00

Ármann Höskuldsson á innfelldu myndinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur, segir að mikið hafi dregið úr krafti gossins sem hófst á Sundhnúkagígaröðinni á laugardagskvöldið, það sé að fjara út hægt og rólega.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag og er haft eftir Ármanni að gosin fjögur á síðustu þremur mánuðum séu öll keimlík og að þau megi rekja til jarðhræringanna 10. og 11. nóvember á síðasta ári.

„Þessi atburðarás byrjar á því að jaðarinn á flekamótunum slitnar í nóvember og smám saman fer kvika að flæða inn í lítinn laggang undir Svartsengi. Þegar þrýstingurinn var orðinn nægur þar gat hann lyft blokkinni upp, sem losnaði í nóvember í jarðskjálftahrinunum, og kvikan skaust út, upp um þessa þekktu gossprungu,“ sagði hann og benti á að þetta muni endurtaka sig á meðan kvika flæðir inn í Svartsengi.

„En um leið og Eldvörpin ná að rifna geri ég ráð fyrir að eldvirknin færist þangað og þá verður auðveldara fyrir kvikuna að koma upp þar,“ sagði hann síðan.

Hann sagði að gögn sem Veðurstofan hefur birt sýni að ef gýs í Eldvörpum muni áhrifanna gæta sífellt meira til vesturs en takmarkist meira til austurs. Fyrir austan liggur aðalsprungan á flekamótunum um Sundhnúkagígaröðina. Þegar þetta gerist geta gosin varað lengur en síðustu gos að sögn Ármanns. Þá geti kvikan komið af meira dýpi og hætti að safnast upp í Svartsengi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar