fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Björn deilir skjáskoti um hælisleitendur – Ekki trúa öllu sem þið lesið á netinu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. mars 2024 11:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, gerði skjáskot af umræðu á Facebook að umtalsefni á sinni eigin Facebook-síðu í morgun.

Í umræddu skjáskoti er fjallað um hælisleitendur hér á landi og fullyrt að þeir hafi það býsna gott. Kona, Íris að nafni, bendir á það að „þeir fái allt frítt í apótekum“, þar á meðal fín krem, sjampó og lyf og þeir „tæmi“ jafnvel hillur.

Önnur kona, Kolbrún að nafni, segir síðan:

„Get því miður staðfest þetta með apótekin. Var að vinna í apóteki Hafnarfjarðar og við höfðum varla við að fylla á vörur og allt skrifað á ríkið. Allskonar dýrar vörur sem maður leyfir sér ekki sjálfur var hreinlega hamstrað út.“

Björn Leví gerði skjáskotið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir ýmislegt í fyrrgreindum fullyrðingum ekki eiga við rök að styðjast miðað við fyrirliggjandi gögn.

„Ég sé að það er verið að deila þessu skjáskoti dálítið og mig langar til þess að sýna fram á að þetta er ekki rétt fullyrðing um „höfum ekki við að fylla á vörur“ og „alls konar dýrar vörur sem maður leyfir sér ekki sjálfur var hreinlega hamstrað út“.“

Björn bendir á að hægt sé að fletta þessu öllu upp á vefnum opnirreikningar.is sem hann ákvað að gera eftir að hafa séð skjáskotið í umferð. Birtir hann sýnishorn af þeim gögnum í athugasemdum við færslu sína.

„Heildarupphæðin er rétt rúm milljón vegna vöruflokkanna „Vörur til skyndihjálpar“ og ein færsla um „Hreinlætisvörur, ræstingavörur“ upp á 2458 kr.

„Þetta er satt og algjörlega galið“ gæti litið þannig út fyrir nóvember á síðasta ári þar sem þessar vörur voru nær eingöngu keyptar þá. Nokkrar færslur eru í mars á síðasta ári líka. En í heildina fyrir árið er þetta ein milljón. Vörur til skyndihjálpar en ekki fín krem eða eitthvað slíkt,“ segir hann.

Bætir hann við að ef „fín krem“ hafi verið keypt fyrir þennan pening sé verið að ljúga á opnirreikningar.is. Bendir hann á að það varði við lög.

„Þá væri apóteki Hafnarfjarðar, eða vinnumálastofnun […] beinlínis skylda að upplýsa slíkt – en það er einmitt hægt út af tólum eins og opnirreikningar.is – en ef það er málið þá skal ég veðja við hvern sem er að það voru ekki hælisleitendur sem fengu þau fínu krem.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí