fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Fréttir

„Enginn á að vera hryggur um jólin“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 3. desember 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fæst okkar gera sér grein fyrir meðferðinni sem svín sæta. Þauleldi svína fer fram bak við luktar dyr hulið neytendum. Kaup á skinku, pulsu og hamborgarhrygg eru stuðningur við hræðilega meðferð á grísum. Förum fram á betri meðferð svína og sleppum hamborgarhryggnum um jólin,“

segja Darri Gunnarsson, verkfræðingur og félagi í Samtökum um dýravelferð á Íslandi, og Rósa Líf Darradóttir, læknir og formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi í grein sinni á Vísi.

Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) standa að vitundarvakningu gegn verksmiðjubúskap í svínaeldi. „Með því að hafna kjöti sem verður til við óásættanlegar aðstæður fá framleiðendur skýr skilaboð um að hverfa til búskapar þar sem betur er búið að dýrunum. Öll dýr eiga skilið líf sem virði er að lifa.“

Darri og Rósa Líf benda á að í „verksmiðjum þar sem svín eru þaulalin til matvælaframleiðslu nýtir maðurinn sér frjósemi svína og hraðan vöxt. Grísir búa þar á sínu stutta æviskeiði við hræðilegar aðstæður þar sem þeir hafa enga möguleika til að stunda sitt eðlilega atferli. Þeim er aldrei hleypt út, þeir sjá aldrei til sólar, geta aldrei hlaupið um í grasinu eða hnusað af jörðinni. Stuttri ævi grísanna lýkur svo á hræðilegan hátt í gasklefa. Þá er nokkrum grísum smalað inn í búr. Búrið sígur svo niður í pytt þar sem grísirnir er kæfðir við hrikalegar aðstæður, óttaslegnir og kvaldir. Fyrirtæki á borð við Marel stæra sig af hönnun drápsvéla eins og þeirri sem hér er lýst. Á vefsíðu fyrirtækisins eru kostir slíkra véla taldir upp, m.a. að ferlið getur gengið fyrir sig án þess að mannshöndin komi þar nærri og að aðferðin sé „dýravæn”. Aftenging mannsins við iðnvæðingu dýraeldis er hrópandi þegar sjálfvirkri gasklefadrápsvél er lýst með orðinu dýravæn. Orð sem getur ekki verið fjarri sannleikanum þegar ferlið er skoðað.“

Darri og Rósa Líf fara í grein sinni yfir atferli og hegðun svína, sem þau segja líða best í hópum þar sem þau mynda sterka félagsleg heild. „Hóparnir samanstanda gjarnan af nokkrum gyltum og grísum þeirra. Sterk tenging myndast á milli systkina úr sama goti. Við náttúrulegar aðstæður heldur gyltan sig ásamt grísunum afsíðis í fleti sínu í um tvær vikur. Grísir eru þroskaðir við fæðingu. Þeir sjá, heyra og geta staðið upp nær strax. Leikgleði þeirra kemur strax í ljós en þeir hegða sér eins og hvolpar og dilla halanum þegar þeir eru glaðir. Vikugamlir leika þeir sér saman ærslast, þvælast og slást. Þeir leika sér einnig einir og þá helst við að kanna umhverfið og róta í jarðvegi með trýni sínu. Þegar komið er að gjöf á spena kallar móðir þeirra á þá. Grísirnir þekkja rödd hennar frá fyrsta degi. Þeir safnast til hennar með hraði, drekka nægju sína og sofna gjarnan í einni kös við hlið hennar á eftir. Alveg eins og hvolpar, bara bleikir á litinn og með klaufir í stað loppa.

Svín eru afar greind og hafa meiri vitsmuni en hundar. Þau hafa mikla hæfileika til að læra og finna leiðir til að leysa þrautir og rannsóknir sýna að þau geta nýtt sér nýjar upplýsingar með því sem þau hafa áður lært. Þau kunna að meta tónlist. Dæmi er um að svín hafi unnið saman við að losna úr búrum. Við rannsókn sem gerð var í Pennsylvania State University lærðu svín að spila einfalda tölvuleiki.“

Greinina má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“