fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Arnar Þór greinir frá andláti föður síns í miðri kosningabaráttu

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 17. nóvember 2024 21:01

Arnar Þór Jónsson. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Guðmundsson, fasteignasali og eigandi Fasteignamarkaðsins, er fallinn frá, 82 ára að aldri. Frá þessu greinir sonur hans, Arnar Þór Jónsson, oddviti Lýðræðisflokksins í færslu á Facebook-síðu sinni.

„Elsku pabbi, Jón Guðmundsson, kvaddi þessa jarðvist í morgun eftir hugdjarfa baráttu. Við hittumst fyrst gosnóttina í janúar 1973 þegar hann tók á móti okkur í Þorlákshöfn. Hann gekk mér í föðurstað og hefur fylgt mér af trúfestu og styrk allt til þessa dags. Við leiðarlok er ég þakklátur honum fyrir að herða mig og styrkja, fyrir smekkvísi, vinnusemi og ræktarsemi. Guð blessi hann og leiði inn í hið eilífa ljós,“ skrifar  Arnar Þór.

Jón fæddist í Neskaupstað þar sem hann ólst upp en flutti síðan til Garðabæjar þar sem hann bjó síðan. Hann var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum auk þess að sitja í stjórn Stjörnunnar um langt skeið.

Jón eignaðist þrjú börn með fyrri eiginkonu sinni Ásdísi Þórðardóttur, Arnar Þór, Guðmund Theódór og Sigríði Ásdísi. Ásdís féll frá árið 1991 en árið 1999 eignaðist Jón dótturina Thelmu Sif með Sigrúnu Magnúsdóttur. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Jóhanna Hreinsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“