Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja að það gæti orðið nauðsynlegt að „fella fiskvinnslufólk af launaskrá“ í hráefnisskorti borgi Atvinnuleysistryggingasjóður ekki áfram laun þeirra í hráefnisskorti. Starfsfólkið muni sjálft þurfa að leita til Vinnumálastofnunar.
Þetta kemur fram í umsögn SFS við fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að lög um greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna fiskvinnslufólks verði felld úr gildi. Það er lög númer 51 frá árinu 1995 þar sem kveðið er á um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufyrirtækja sem greiða starfsmönnum laun á meðan tímabundinni vinnslustöðvun stendur sökum hráefnisskorts að uppfylltum vissum skilyrðum.
Borga ekki laun á uppsagnarfresti
SFS leggjast gegn afnámi þessara greiðslna og segja að ef þetta verði að veruleika geti þurft að „fella starfsfólk af launaskrá.“
„Hráefnisskortur í fiskvinnslu er vandamál sem getur haft veruleg áhrif á störf starfsfólks í greininni, sérstaklega hjá minni fiskvinnslum, og hefur úrræðið verið mikilvægt fyrir þessi fyrirtæki,“ segir í umsögninni sem Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, skrifar.
„Þar sem ljóst er að verði úrræðið afnumið gæti þurft að grípa til annarra ráðstafana sem koma til muna verr niður á starfsfólki fiskvinnsla,“ segir í umsögninni. „Til dæmis gæti orðið nauðsynlegt að fella starfsfólk af launaskrá samkvæmt 3. gr. laga 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnarfrests og launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla.“
En í þeirri grein segir að atvinnurekanda sé ekki skylt að greiða laun á uppsagnarfresti falli niður atvinna, svo sem vegna hráefnisskorts eða ófyrirsjáanlegu áfalli eins og bruna eða skiptapa.
Eykur flækjustig fyrir starfsfólk
Þá segja SFS að greiðslurnar úr Atvinnuleysistryggingasjóði tengist kjarasamningsbundnum réttindum. Í kjarasamningi Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins sé kveðið á um kauptryggingu fyrir fiskvinnslufólk. Enda fái fiskvinnslustöðvar endurgreiðslur frá sjóðnum eins og lögin sem afnema á kveða á um.
„Samkvæmt kjarasamningi er vinnuveitandi skuldbundinn til að greiða starfsfólki föst laun fyrir dagvinnu í formi kauptryggingar, jafnvel þótt hráefnisskortur valdi vinnslustöðvun. Atvinnuleysistryggingasjóður endurgreiðir þá fyrirtækjunum vegna tímabundinna vinnslustöðvanna fyrir starfsfólk með kauptryggingu,“ segir í umsögn SFS. „Ef starfsfólk er fellt af launaskrá, sem leiða mun af þessari lagabreytingu, þá þarf það sjálft að leita til Vinnumálastofnunar. Slíkt eykur verulega á flækjustig og óhagræði aðila, þá sérstaklega fyrir starfsfólkið.“
Þá gagnrýna SFS einnig skort á samráði við hagaðila vegna þessarra fyrirhuguðu breytinga. SFS hafi á engum tímapunkti verið upplýst um breytinguna þrátt fyrir að þær snerti verulega hagsmuni í greininni. Þá hafi núverandi framkvæmd ekki sætt sérstakri gagnrýni áður.