fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Fréttir

Facebook læsti Ástþór úti og kosningabarátta hans í uppnámi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 9. janúar 2024 13:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur ekki haft aðgang að sinni eigin Facebook-síðu í næstum því eitt ár. Hefur hann skrifað Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) bréf þar sem hann vekur athygli á því að Facebook sé að hafa ólögmæt áhrif á lýðræðislegar kosningar á Íslandi með því að útiloka hann frá því að eiga samskipti við fylgjendur sína á stærsta samfélagsmiðli heims. Ástþór greinir frá þessu í pistli á heimasíðu sinni.

Sambandið við Ísland rofið

„Ég hef ekki haft aðgang að minni Facebook síðu í nær heilt ár. Ég fæ daglega tölvupósta um að einhver af þeim þúsundum sem fylgja mér á samfélagsmiðlinum hafi sett inn nýja mynd, skrifað póst eða sent mér persónuleg skilaboð. Ég get hins vegar engu svarað. Einnig hef ég ekki getað skrifað ummæli um fréttir eða málefni á íslenskum fréttasíðum því flestar þeirra nota Facebook kommentakerfið. Samband mitt við Ísland er því nánast að fullu rofið þar sem nær 100% þjóðarinnar notar Facebook til daglegra samskipta á Íslandi,“ segir Ástþór og er augljóslega ósáttur við þetta.

Vandræðin byrjuðu í Suður-Ameríku

Í pistli sínum segist Ástþór hafa verið á ferðalag í Suður-Ameríku síðastliðið vor þar sem hann glataði tæki með auðkennisappi.

„Facebook hafði innleitt kröfu um að nota slíkt við innskráningu á samfélagsmiðilinn. Einnig glötuðust innskráningalyklar mínir frá öðrum netveitum og bönkum. Þar var hinsvegar lítið mál að staðfesta innskráningu eftir öðrum leiðum og setja upp nýja app lykla. Hinsvegar segist Facebook ekki geta veitt neina slíka aðstoð. Sem betur fer lenti ég ekki í slíkri uppákomu hjá viðskiptabanka míns fyrirtækis enda hefði það stöðvað reksturinn samstundis og sett samskipti við starfsfólk og viðskiptavini í algert uppnám ef aðgangi að bankareikningum fyrirtækisins hefði verið lokað með sama hætti og Facebook lokaði aðgangi mínum að samfélagsmiðlinum. Þetta hefur sett samskipti mín þar við viðskiptavini og aðra í uppnám,“ segir hann.

Greiða ekki krónu í opinber gjöld

Ástþór veltir fyrir sér þeim gríðarlegu áhrifum sem samfélagsmiðlar á borð við Facebook hafa. Segir hann raunar að miðstýrðir samfélagsmiðlar séu byrjaðir að grafa undan lýðræðinu.

„Facebook er orðið svo valdamikið á Íslandi, að nánast engin umræða getur átt sér stað milli kjörinna fulltrúa og þjóðarinnar nema með samþykki Meta. Stjórnendur og eigendur META og gervigreind sem þeir nota nú geta slökkt á mönnum og málefnum eftir geðþótta,“ segir hann.

Hann vandar Meta, móðurfyrirtæki Facebook, ekki kveðjurnar og segir fyrirtækið hirða til sín stærstan hluta auglýsingatekna á Íslandi og það algerlega skattfrjálst.

„Þetta erlenda stórfyrirtæki hirðir ekkert um velferð íslensku þjóðarinnar og rekið hér með því markmiði að soga sem mest af fjármunum okkar úr landi án þess að gefa neitt til baka. Facebook sem í auknum mæli stjórnað með gervigreind greiðir ekki krónu í laun eða opinber gjöld á Íslandi þrátt fyrir að reka stærsta fjölmiðil landsins. Sjálfstæðir íslenskir fjölmiðlar eru að lognast út af vegna þessarar óheilbrigðu samkeppni sem nú tröllríður þjóðfélaginu.“

Þúsund milljarða króna sekt

Sem fyrr segir hefur Ástþór skrifað ÖSE bréf vegna málsins og bendir hann á nýja Evrópulöggjöf sem setur skyldur á samfélagsmiðla í markaðsráðandi stöðu, meðal annars hvað varðar lýðræði.

„Fyrirtæki sem misnota aðstöðu sína eins og Facebook er að gera gagnvart mér sem frambjóðanda til forseta í lýðræðisríki innan Evrópu, getur átt von á sektum allt að 6% af ársveltu þeirra á heimsvísu. Meta fyrirtækið var með nær 127 milljarða dollara veltu á síðasta ári og gæti því sektin á META numið 7,6 milljörðum dala sem samsvarar þúsund milljörðum íslenskra króna.

Ástþór segist í pistli sínum hafa reynt að vekja athygli fyrrum dómsmálaráðherra á hættunni sem væri að skapast af markaðsráðandi stöðu Facebook á Íslandi, bæði hvað varðar frjálsa fjölmiðlun og lýðræðisþróun.

„Svörin sem ég fékk voru á þá leið að lítið væri hægt að gera, það væri ekki hægt að ná neinu vitrænu samtali við Facebook,“ segir hann.

Vel hægt að kasta Facebook út á hafsauga

Ástþór segist vilja beita sér fyrir því sem forseti að opna þær dyr sem þarf til að ná vitrænu sambandi við eigendur og stjórnendur Facebook og annarra samfélagsmiðla sem starfa á Íslandi.

„Ég vil ná samstarfi um að þeir verði látnir greiða eðlileg gjöld af sinni starfsemi hér á landi og að þeim verði skylt að veita eðlilega þjónustu við sína viðskiptavini hér á landi. Þeim verði skylt að hafa hafa virkt símanúmer og aðrar samskiptaleiðir til að tryggja að uppákomur eins og ég að mér skilst þúsundir annarra hafa lent í með lokun á aðgöngum verði ekki látið viðgangast.“

Er það mat Ástþórs að á næstu árum þurfi að koma upp samfélagsmiðli sem þjóðin stjórnar sjálf.

„Með samhentu þjóðarátaki sem forseti Íslands gæti staðið fyrir ásamt íslenskum fjölmiðlum getum við kastað Facebook út á hafsauga á stuttum tíma og stjórnað okkar sjálf í netheimum.  Hugbúnaðar lausnirnar eru til staðar sem gera fólki kleift að flytja öll gögn of samskipti yfir á íslenskan samfélagsmiðil. Á Bessastaði vantar leiðtoga með framtíðarsýn sem sefur ekki á vaktinni.“

Hér má lesa bréf Ástþórs til ÖSE. Athygli er vakin á því að það er á ensku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að hestamannafélag hafi fengið svæði sem ætlað hafi verið íbúum í hjólhýsum og húsbílum

Segir að hestamannafélag hafi fengið svæði sem ætlað hafi verið íbúum í hjólhýsum og húsbílum
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Útgáfufélag Viljans úrskurðað gjaldþrota – Samnefndur fjölmiðill mun þó halda sínu striki

Útgáfufélag Viljans úrskurðað gjaldþrota – Samnefndur fjölmiðill mun þó halda sínu striki