fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Ákærður fyrir að hafa evrur og dollara undir höndum á flugvellinum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 13. september 2024 18:30

Flugferð frá Íslandi til Póllands í desember leiddi til örstuttra kynna pólskrar konu og íslensks karlmanns en hann hefur æ síðan verið konunni afar hugleikinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmenskum manni á fertugsaldri hefur verið birt ákæra í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákæru héraðssaksóknara.

Maðurinn er sakaður um að hafa í nóvember í fyrra, á tveggja daga tímabili, tekið við samtals 9180 evrum og 800 bandarískum dollurum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum. Segir í ákæru að ákærða geti ekki hafa dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum.

Peningarnir eru samtals að verðmæti um 1,5 milljónir íslenskra króna. Maðurinn var með þá í fórum sínum þegar hann var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli þann 15. nóvember 2023. Átti hann þá bókað flug til Búdapest í Ungverjalandi.

Í ákærunni segir: „Með háttsemi sinni móttók ákærði ávinning af refsiverðum brotum, geymdi ávinninginn, flutti og leyndi ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli, staðsetningu og ráðstöfun hans.“

Er þess krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og peningarnir gerðir upptækir.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 6. nóvember næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti