fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Segir farir sínar ekki sléttar af 1818 – Fékk rukkun fyrir þjónustuna og aðra fyrir að kvarta yfir að vera rukkuð

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 16:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytandi nokkur segir farir sínar ekki sléttar af upplýsinganúmerinu 1818, hún hafi fengið háan reikning að hennar mati og síðan annan reikning fyrir að kvarta yfir fyrri reikningnum.

Konan vekur athygli á málinu í Facebook-hópnum Vertu á verði-eftirlit með verðlagi. 

„Ég vil vara fólk við að hringja í 118 upplýsingar,,ég þurfti að hringja þangað til að fá breytingu á heimilisfanginu, þar sem síðan hjá símanum bauð ekki upp á það,fékk svo reikning frá símanum upp á rúmar 2500 kr,,ég var að sjálfsögðu ekki ánægð og kvartaði við 118..takk fyrir annar reikningur upp á rúmar 3000.kr..Þarna sitja einhverjir  og hafa af manni peninga og kalla sig þjónustu..Ekki hringja í 118 nema í algjöri neyð…“  

Líklega á hún þó við númerið 1818, sem er eitt þriggja númera sem veita slíka þjónustu. Þann 30. Júní 2015 var númerið 118 lagt niður og ekki leng­ur hægt að fá upp­lýs­ing­ar um síma­núm­er í því númeri. Þrír aðilar veita þessa þjón­ustu: Halló ehf. í síma­núm­er­inu 1800, Já í síma­núm­er­inu 1818 og Nýr val­kost­ur ehf. í síma­núm­er­inu 1819.

Konunni er bent á að hún hafi getað breytt heimilisfangi sínu ókeypis inn á ja.is, en hún segir: „Fann ekki þar það sem ég ætlaði að gera ,,þetta var um helgi og stúlkan sem ég talaði við fann ekki tengil heldur og benti mér á að hringja í 118 eftir helgina til að redda málum..sem kostaði mig þetta..“

Kona nokkur spyr: „Áttu við að þjónustan eigi að vera frí?“

Samkvæmt vefsíðu 1818 þar sem fá má upplýsingar um símanúmer, heimilisföng og opnunartíma er upplýsinganúmerið opið virka daga 8-22 og um helgar frá 10-22.

Mínútulangt símtal í 1818 kostar 720,05 kr. Má því ætla að símtal konunnar hafi verið þrjár mínútur. 

Einnig kemur fram að símafyrirtækin leggja gjöld á verðskrá Já samkvæmt eigin verðskrá. Sjá verðskrá Vodafone er birt. Nánari upplýsingar um verðskrá annarra símafyrirtækja er hægt að nálgast á heimasíðum þeirra.

Neytendum er bent á að ef það vill breyta skráningu sinni á ja.is má gera það frítt hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin