fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Skúli lætur ráðuneyti Lilju heyra það – Brjóti lög með seinagangi og svari honum seint og illa

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 6. júní 2024 12:00

Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á vef umboðsmanns Alþingis, Skúla Magnússonar, hefur verið birt tilkynning vegna tveggja mála sem snúa að menningar- og viðskiptaráðuneytinu en ráðherra þess er Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Málunum hafði umboðsmaður lokið á síðasta ári en virðist hafa snúið sér aftur að þeim þar sem lítið virðist hafa þokast í þeim. Snúa þau einkum að seinagangi ráðuneytisins við afgreiðslu stjórnsýslukæra sem þangað hafa borist. Í öðru málinu hefur umrædd kæra verið til meðferðar hjá ráðuneytinu síðan um mitt ár 2021, en hinu frá því fyrri hluta síðasta árs.

Umboðsmaður Alþingis gerir einnig athugasemdir við að svör ráðuneytisins við fyrirspurnum hans vegna málanna hafi borist seint og illa. Í tilkynningunni á vef umboðsmanns segir að með þessum töfum á afgreiðslu umræddra mála hafi ráðuneytið brotið gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga.

Í tilkynningunni segir að í eldra málinu frá 2021 hefði umboðsmaður lokið málinu í ljósi fyrirætlana ráðuneytisins um að úrskurða í því. Áður en hann hafi beitt sér í málinu hefði lögmaður kæranda þó margítrekað kæruna og óskað eftir upplýsingum um framgang hennar og almennt fengið þau svör að niðurstöðu væri að vænta innan skamms. Í málunum tveimur og fleiri til, hafi umboðsmaður ítrekað þurft að ganga eftir svörum og upplýsingum sem ráðuneytið segir skýrast af miklum önnum og álagi. Að sögn ráðuneytisins séu þessi tvö mál komin í forgang en úrskurðir liggi þó sennilega ekki fyrir fyrr en um mánaðamótin ágúst/september næstkomandi.

Álag og annir ekki réttmætar afsakanir

Minnir umboðsmaður í tilkynningu sinni á að samkvæmt málshraðareglu stjórnsýslulaga skuli ákvarðanir teknar svo fljótt sem unnt sé. Margra mánaða og jafnvel áralangar óútskýrðar tafir verði ekki réttlættar með vísan til anna og álags. Ef stjórnvald telji sig ekki geta framkvæmt þau verkefni sem því séu falin innan lögmælts frests, eða að öðru leyti í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar um málshraða, verði það að gera ráðstafanir til að bæta úr.

Að lokum segir umboðsmaður í tilkynningunni að óskað sé eftir svörum frá ráðuneytinu um hvort ábendingarnar leiði til einhverra viðbragða og þá hverra. Jafnframt að veittar verði upplýsingar um fjölda úrskurða sem það hafi kveðið upp frá 23. apríl 2023 og hafi það kveðið upp úrskurði síðan þá hvenær megi þá vænta þess að þeir verði birtir á vef Stjórnarráðsins.

Þegar þessi orð eru rituð hefur enginn nýrri úrskurður ráðuneytisins enn birst á vef Stjórnarráðsins.

Sögðu niðurstöðu að vænta innan mánaðar en ekki enn komin

Með tilkynningunni á vef umboðsmanns eru birt álit hans vegna málanna tveggja og bréfaskipti þeirra vegna.

Í eldra málinu, frá 2021, kemur meðal annars fram í bréfi umboðsmanns til einstaklingsins sem lagði stjórnsýslukæruna upphaflega fram að umboðsmaður hafi ritað menningar- og viðskiptaráðuneytinu bréf í apríl 2023 og spurst fyrir um hvenær niðurstöðu væri að vænta í málinu. Ráðuneytið hafi svarað í maí sama ár að niðurstaða væri væntanleg í lok næsta mánaðar, þ.e.a.s. í júní 2023, og lét umboðsmaður þá málinu lokið.

Nú ári síðar bíður kærandinn hins vegar enn eftir niðurstöðu. Lögmaður viðkomandi kvartaði á ný til umboðsmanns Alþingis í febrúar á þessu ári. Umboðsmaður spurðist fyrir um málið 15. febrúar en ráðuneytið sendi svar 29.apríl, tveimur og hálfum mánuði síðar, og bar við önnum og álagi en sagði málið komið í forgang. Umboðsmaður spurðist aftur fyrir um stöðu þess í seinni hluta maí síðastliðins. Degi síðar barst svar um að niðurstöðu væri að vænta um mánaðamótin ágúst/september.

Huga betur að þessum atriðum

Umboðsmaður segir að í ljósi þess að málið sé í þessum farvegi ætli hann ekki að aðhafast frekar að sinni.

Hann sendi þó menningar- og viðskiptaráðherra, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, bréf vegna málanna tveggja sem birt eru með tilkynningunni á vef umboðsmanns.

Í bréfinu vegna eldra málsins segir umboðsmaður Lilju Dögg að seinagangur ráðuneytis hennar við meðferð málanna brjóti gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga. Einnig eru gerðar ítarlegar athugasemdir við það hversu seint og illa ráðuneytið hafi svarað fyrirspurnum umboðsmanns. Segir meðal annars í bréfinu að ítreka hafi þurft fyrirspurnir til að fá upplýsingar um hvenær niðurstöðu væri að vænta í umræddum málum. Umboðsmaður segir þennan seinagang ráðuneytisins við að svara fyrirspurnum embættis hans ekki samræmast lögum um umboðsmann Alþingis.

Beinir umboðsmaður eftirfarandi tilmælum til ráðherrans:

„Ég bendi ráðuneyti yðar því á að huga betur að þessum atriðum í störfum sínum.“

Óskað er eftir því að ráðuneytið upplýsi umboðsmann um það fyrir 1.ágúst næstkomandi hvort þessar ábendingar hans verði tilefni til einhverra viðbragða af hálfu ráðneytisins.

Menningar- og viðskiptaráðuneytið er ekki fyrsta opinbera stofnunin sem umboðsmaður hefur átalið fyrir of mikinn seinagang við meðferð mála en nýlega hafa bæði Embætti landlæknis og Orkustofnun hlotið slíkar átölur.

Skúli skammar Willum og Ölmu vegna sífelldra tafa á meðferð kvartana hjá embætti landlæknis

Orkustofnun fær á baukinn frá Skúla – Tóku sér 26 mánuði að afgreiða kvörtun og komu með afsakanir sem margar standast enga skoðun

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri