fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Þetta eru dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands

Ritstjórn DV
Mánudaginn 3. júní 2024 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ákvörðunin var tilkynnt á föstudaginn og tók gildi frá og með 1. júní.

Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun. Þar er kannað verð á algengum gististöðum bæði á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Ferðakostnaður innanlands tekur almennt breytingum tvisvar á ári, að vori og að hausti, til að endurspegla árstíðasveiflur í kostnaði gistingar.

Dagpeningar eru nú eftirfarandi:

  • Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 54.400
  • Gisting í einn sólarhring kr. 38.100
  • Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 16.300
  • Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.150

Meginreglan er að greiða skuli kostnað vegna ferðalaga innanlands svo sem fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður m.v. breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefinn er að Hagstofu Íslands.

Á laugardaginn féll úr gildi fyrri ákvörðun ferðakostnaðarnefndar frá því í apríl á síðasta ári sem var eftirfarandi:

  • Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 49.500
  • Gisting í einn sólarhring kr. 34.300
  • Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.200
  • Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.600
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist