Hæstiréttur Íslands hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Gareese Joshua Gray sem dæmdur var í Landsrétti fyrir nauðgun. Gareese, sem var nítján ára, hafði staðið klofvega yfir sextán ára stúlku, fróað sér og haft sáðlát yfir andlit hennar gegn hennar vilja.
Hæstiréttur veitti leyfið í gær, þriðjudag. Ekki af því að talið er að það þurfi að leggja mat á sönnunargildi framburða í málinu heldur vegna þess að það þurfi að fá úrlausn um heimfærslu háttseminnar til refsiákvæða.
Í Héraðsdómi Norðurlands eystra þann 8. febrúar árið 2023 var Gareese fundin sekur um brot gegn blygðunarsemi. Sakfellingin var staðfest 23. febrúar síðastliðinn í Landsrétti en þá heimfært undir önnur kynferðismök og nauðgun. Var dómurinn jafn framt þyngdur, úr 9 mánaða skilorðsbundnu fangelsi í 2 ára óskilorðsbundið fangelsi.
Brotið átti sér stað á heimili stúlkunnar þegar Gareese og annar maður, sem stúlkan þekkti til, komu þangað til að hlusta á tónlist og spjalla. Þegar félagi stúlkunnar fór út í búð gerðist Gareese ágengur og lét stúlkan undan kynferðislegum tilburðum hans, svo sem að kyssa á honum liminn. Náði hún að stöðva að hann kæmi hendi sinni inn undir buxur hennar. Að lokum settist hann klofvega yfir hana, fróaði sér og hafði sáðlát yfir andlit hennar þrátt fyrir að hún hafi sagt honum að hún vildi það ekki.