Stór hluti Gaza er rústir einar eftir harðar árásir Ísraelsmanna, íbúarnir glíma við sult og samkvæmt tölum frá Hamas þá hafa rúmlega 34.000 manns fallið.
Eins og víðast annars staðar í Arabaheiminum þá kenna flestir Ísrael um þá stöðu sem uppi er en hjá sumum á Gaza er reiðin nú farin að beinast að Hamas. Það er mjög óvenjulegt því samtökin hafa stýrt Gaza með harðri hendi síðan 2007 og hafa handtekið andstæðinga sína og tekið hart á þeim sem gagnrýna samtökin.
Jótlandspósturinn segir að margir Gazabúar segi að Hamas hefði átt að vita að árásin á Ísrael þann 7. október myndi hafa miklar afleiðingar og að samtökin hefðu átt að gera meira til að vernda almenna borgara. Þess í stað hafi liðsmenn samtakanna látið sig hverfa ofan í göngin undir Gaza og hafi skilið óbreytta borgara eftir varnarlausa.
„Þeir hefðu átt að sjá viðbrögð Ísraels fyrir og hugleiða hvað myndi verða um þær 2,3 milljónir sem búa á Gaza og hafa engan öruggan stað til að fara á. Þeir hefðu átt að takmarka þetta við hernaðarleg skotmörk, „sagði Nassim, embættismaður á eftirlaunum, í samtali við Financial Times og vísaði þar til þess að meirihluti þeirra 1.200 Ísraelsmanna, sem féllu í árás Hamas, voru óbreyttir borgarar.
Walid, sem starfar við neyðarhjálp á miðhluta Gaza, sagði í samtali við dagblaðið Science Monitor að honum finnist að „Hamas hafi lagt líf okkar að veði í leik og tapað“.
„Hamas varaði okkur ekki við og kom ekki með neinar leiðbeiningar um vernd eða hjálpaði fólki. Ég veit ekki hvað þeir hugsuðu eða hvað þeir bjuggust við að fólk myndi gera en þetta er óásættanleg fyrir alla á Gaza,“ sagði hann.