Dagurinn í gær var viðburðaríkur hjá athafnamanninum Sverri Einari Eiríkssyni. Lögregla, í umboði skattayfirvalda, linnsiglaði þá skemmtistaði Sverris í miðborginni, B5 og Exit. Einnig var rekstur netverslunarinnar Nýju Vínbúðarinnar, sem Sverrir rekur, stöðvaður.
Tjáði Sverrir sig um málið í gær í yfirlýsingu, þar sem sagði meðal annars:
„Rekstur B5 í Bankastræti hefur verið þungur eftir að til lokunar kom í kjölfar yfirgangs og afskipta lögreglu sem kvartað hefur verið yfir til lögreglu. Beiðni skattayfirvalda um lokun á staðnum er því lögmæt og ekki gerður ágreiningur um hana. Staðurinn hefur enda verið lokaður um nokkurn tíma. Unnið er að því að greiða úr þeim málum og stefnt að opnun aftur í maí.“
Myndband sem sýnir nokkuð harkalega handtöku á Sverri í tengslum við málið hefur vakið mikla athygli. Myndbandið má sjá í spilara hér fyrir neðan. Sverrir lýsir handtökunni sem leikriti. Er DV bað um viðbrögð við atvikinu sendi Sverrir eftirfarandi yfirlýsingu:
„Lögreglan kom þar sem ég var að fá mér te á veitingastað við hlið skemmtistaðarins Exit og vildi ræða við á þeim forsendum að grunur léki á um að innsigli hefði verið rofið á Exit. Það var auðsótt og var ég því hissa á þessu leikriti lögreglu að færa mig í járn og tel að það hljóti að vera gert með það fyrir augum að niðurlægja mig eða lækka í mér rostann með einhverjum hætti. Áður hafði ég bent þeim á að ég teldi innsiglunina ólöglega af því rekstur Exit sé ótengdur rekstri B5. Þeim orðaskiptum var lokið og ekki nokkur ástæða til þessa sjónarspils. Ég trúi því að fljótlega verði greitt verði úr þessum málum sem varðar innsiglunina á þessum stöðum og lögregla fái þá vonandi um einhver merkilegri mál að hugsa.“
Myndband af handtökunni má sjá hér að neðan: