fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Viðskiptavinir Krónunnar söfnuðu 4,5 milljónum fyrir Grindvíkinga

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 23. febrúar 2024 10:43

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls söfnuðu viðskiptavinir Krónunnar 4,5 milljónum króna í neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi þar sem markmiðið er að safna fé fyrir íbúa Grindavíkur. Upphæðin mun renna óskert í söfnun Rauða krossins til að styðja fjárhagslega við íbúa Grindavíkur í kjölfar eldsumbrota á svæðinu. Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum Krónunnar að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín þegar verslað var á sjálfsafgreiðslukössum verslana um allt land yfir tveggja vikna tímabil.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, afhenti Kristínu S. Hjálmtýsdóttur, framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, framlag viðskiptavina í höfuðstöðvum Krónunnar í gær, eins og segir í fréttatilkynningu.

„Framlag Krónunnar og viðskiptavina hennar er mjög mikilvægt og sýnir breiðan stuðning í samfélaginu við neyðarsöfnun Rauða krossins, Grindvíkingum til handa,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Guðrún, framkvæmdastjóri Krónunnar, segist ánægð með að geta nýtt lausnir innan verslana til að aðstoða þá viðskiptavini sem vilja leggja sitt af mörkum og styðja bæjarbúa á erfiðum óvissutímum. „Krónan hefur átt í góðu samstarfi við Rauða krossinn í gegnum árin og er ánægjulegt að geta lagt okkar lóð á vogarskálarnar með því að leggja neyðarsöfnuninni lið með þessum hætti. Söfnuninni í verslunum Krónunnar var ætlað að koma til móts við öll þau sem vildu veita bæjarbúum stuðning og sýnir árangurinn bersýnilega hve auðvelt er að virkja samtakamáttinn meðal landsmanna á ögurstundu sem þessari.“ 

Öllu fé sem safnast í neyðarsöfnuninni verður úthlutað til Grindvíkinga í gegnum úthlutunarnefnd, að undanskildum kostnaði við úthlutunina sjálfa. Úthlutunarnefndin samanstendur af fulltrúum Rauða krossins, félagsþjónustu Grindavíkurbæjar og kirkjunnar í Grindavík. Hægt er að sækja um fjárstuðning í þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu við Tryggvagötu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“