fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Útsendarar héraðssaksóknara að safna gögnum og aðstoða namibísk yfirvöld í Samherjamálinu

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 30. janúar 2024 11:00

Ólafur Þór vildi ekki gefa upp hvað útsendararnir væru að gera.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm útsendarar héraðssaksóknara eru staddir í Namibíu vegna Samherjamálsins. Eru þeir bæði að safna gögnum vegna rannsóknar hérna heima sem og að aðstoða namibísks stjórnvöld við sín mál.

Morgunblaðið greindi frá því á fimmtudag að fimmmenningarnir væru í Namibíu. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari vildi hins vegar ekki tjá sig um tilgang ferðarinnar.

Namibíska dagblaðið The Namibian greindi frá því í gær að útsendararnir væru í landinu til þess að safna gögnum vegna Samherjamálsins og að aðstoða namibísks stjórnvöld. Þetta hafi Paulus Noa, forstjóri stofnunarinnar ACC sem berst gegn spillingu, staðfest.

„Rannsakendurnir og héraðssaksóknararnir frá Íslandi eru hér til að hitta kollega sína, fulltrúa ACC,“ sagði hann við The Namibian.

Markmiðið væri að finna sönnunargögn og tryggja að þeir aðilar sem tengdir eru Samherjamálinu séu sóttir til saka, óháð þjóðerni þeirra, innan lagaramma beggja landa.

„Í þeirra landi er þetta spillingarmál einnig glæpur og ef þeir finna sönnunargögn sem bendla þeirra eigin þegna við það, þá verða þeir sannarlega sóttir til saka,“ sagði Noa.

Vildu fá Íslendinga framselda

Namibíumenn sendu sjálfir sendinefnd til Íslands sumarið 2022. Með henni kom Netumbo Nandi-Ndaitwah, utanríkisráðherra og aðstoðarforsætisráðherra, og Martha Imalwa, ríkissaksóknari. Reyndi nefndin að þrýsta á íslensk stjórnvöld, meðal annars um að framselja þrjá fyrrverandi starfsmenn Samherja. Þetta voru Aðalsteinn Helgason, Egill Helgi Árnason og Ingvar Júlíusson.

Í frétt The Namibian kemur fram að Imalwa hafi ekki haft upplýsingar um ferðir íslensku útsendarana. Hafi hún bent á að ACC sæi um málið fyrir hönd namibískra stjórnvalda.

Margir með réttarstöðu sakbornings

Hér á Íslandi hafa alls átta manns réttarstöðu sakbornings í málinu. Þar á meðal Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri og Arna McClure yfirlögfræðingur.

Fjórir eru sakaðir í Namibíu um að hafa tekið við meira en 300 milljónir Namibíudollara í mútugreiðslum fyrir kvóta frá íslenskum fyrirtækjum. Á meðal þeirra eru fyrrverandi ráðherrarnir Bernard Esau og Sacky Shanghala.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
Fréttir
Í gær

Sverrir tjáir sig um handtökuna – „Hissa á þessu leikriti“

Sverrir tjáir sig um handtökuna – „Hissa á þessu leikriti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“