fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fréttir

Matthías Tryggvi ráðinn listrænn ráðunautur í Þjóðleikhúsinu

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 26. september 2023 09:33

Matthías Tryggvi Haraldsson Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og sviðshöfundur, hefur verið ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins. Matthías hefur víðtæka reynslu úr íslensku leikhús- og menningarlífi en er þekktastur fyrir leikverk sín og þátttöku í hljómsveitinni Hatara.  Matthías Tryggvi gengur þar með til liðs við teymi listrænna stjórnenda Þjóðleikhússins. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, sem gegnt hefur starfinu um tæpra fjögurra ára skeið, mun snúa sér að ritstörfum og skrifa nýtt leikrit fyrir leikhúsið eftir að hún lætur af störfum 1. nóvember, þegar Matthías Tryggvi tekur við keflinu.  Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.

„Það er mikill fengur í því að fá Matthías Tryggva til liðs við öflugt teymi listrænna stjórnenda Þjóðleikhússins. Hann er hrikalega skemmtilegur listamaður, hefur mikla reynslu, frábæra þekkingu, innsæi og ástríðu sem ég veit að verður dýrmæt viðbót við teymið sem fyrir er í húsinu. Hann kemur úr frjórri grasrót nýrrar kynslóðar íslensks leikhúslistafólks. Við hlökkum mikið til samstarfsins og bjóðum hann velkominn í hópinn,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri.  

„Fiðrildin í maganum eru strax farin að flögra. Það er með kærleik í hjarta sem ég stíg í þetta hlutverk og get varla ímyndað mér betri vettvang til að nýta krafta mína. Listin er einstakt starfssvið að því leyti að við þurfum í senn fagmennsku og skýra ramma en ekkert síður óendanlegt pláss til að vera púkar. Með hvort tveggja í huga er ég til þjónustu reiðubúinn!“ segir Matthías Tryggvi.

Matthías Tryggvi er reynslumikið leikskáld og höfundur en hefur einnig reynslu sem leikstjóri og dramatúrg. Verk hans hafa verið flutt í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá sjálfstæðum leikhúsum og erlendis. Hann var samningsbundið leikskáld Leikfélags Reykjavíkur. Matthías Tryggvi hefur einnig mikla reynslu á öðrum sviðum menningar og samfélagsmála og var m.a. um árabil í hljómsveitinni Hatara sem vakti athygli víða um heim fyrir tónlist sína, gjörninga og beitta ádeilu. Hann hefur reynslu af dagskrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp auk mikillar reynslu af texta- og hugmyndasmíði, m.a. hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Matthías Tryggvi hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín, m.a. Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leikrit sitt Síðustu dagar Sæunnar, auk annarra tilnefninga. Hann fékk einnig íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins með hljómsveit sinni Hatara. Matthías Tryggvi er útskrifaður sviðshöfundur frá LHÍ.  

Listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins vinnur með Magnúsi Geir Þórðarsyni þjóðleikhússtjóra, Melkorku Teklu Ólafsdóttur leiklistarráðunauti og öðrum listrænum stjórnendum leikhússins að listrænni stefnu, verkefnavali og stuðningi við uppsetningar leikhússins. Hann sinnir höfundastarfi, þróun leikverka með höfundum og ýmiskonar verkefnastjórn.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íris ber saman þá sem eru blankir og þá sem eiga peninga líkt og Haraldur og Bjarni Ben – „Að eiga peninga er ekki „impressive““

Íris ber saman þá sem eru blankir og þá sem eiga peninga líkt og Haraldur og Bjarni Ben – „Að eiga peninga er ekki „impressive““
Fréttir
Í gær

Maður sem hagaði sér undarlega í sundi handtekinn

Maður sem hagaði sér undarlega í sundi handtekinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síminn sektaður fyrir ólöglegar auglýsingar

Síminn sektaður fyrir ólöglegar auglýsingar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hefur þú það sem þarf til að stýra nýju Þjóðaróperunni?

Hefur þú það sem þarf til að stýra nýju Þjóðaróperunni?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við leiðtogafundinn – „Tekið á móti eftirlýstum stríðsglæpamanni með kostum og kynjum“

Ósáttur við leiðtogafundinn – „Tekið á móti eftirlýstum stríðsglæpamanni með kostum og kynjum“