fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Vinnufélagar minnast Fríðu – „Hógvær, jákvæð, hlýleg og skemmtilega húmorísk og glettin“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 5. ágúst 2023 12:04

Fríða Jóhannesdóttir Mynd: Náttúrustofa Austurlands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fríða Jóhannesdóttir spendýrafræðingur lést í flugslysi á Austurlandi 9. júlí, 40  ára að aldri. Ásamt henni fórust í slysinu samstarfsmaður Fríðu, Skarphéðinn G. Þórisson líffræðingurog Kristján Orri Magnússon flugmaður.

Sjá einnig: Vinnufélagar minnast Skarphéðins – „Einstakt ljúfmenni, djúpvitur og sérstaklega vel að sér um alla náttúru og dýralíf“

Fríða starfaði hjá Nátturustofu Austurlands og í færslu á vef NA í gær minnast vinnufélagar hennar en jarðarför Fríðu fór fram í gær.

„Í dag kveðjum við Fríðu í hinsta sinn. Fríða hafði margt til brunns að bera sem einkennir góðan vísindamann, hún var opin fyrir nýjungum, skörp, lausnamiðuð og brann fyrir viðfangsefnum sínum, sem snérust á einn eða annan hátt um að rannsaka hvernig dýr bregðast við breytingum í umhverfi sínu. Fríða var frumleg í nálgun og tilbúin að skoða viðfangsefni sín frá ólíkum hliðum. Meðal annars hafði hún hugmyndir um að túlka niðurstöður með aðstoð listamanna. Hún hafði mikinn áhuga á að miðla vísindum til almennings, einkum ungs fólks til að vekja áhuga. Það kom bersýnilega fram í samskiptum hennar við frændsystkinin hennar sem hún talaði svo fallega um og var augljóslega stolt af.“

Fríða kom til starfa hjá Náttúrustofu Austurlands í september síðastliðnum og sinnti hún meðal annars rannsóknum og vöktun hreindýra, en flugslysið varð við árlega sumartalningu hreindýra. Fríða var vel menntaður vísindamaður með fjölbreytta reynslu víðs vegar að úr heiminum og segjast samstarfsmenn hennar það hafa verið mikinn feng að fá hana til Náttúrustofu Austurlands. 

„Hún vann af krafti við að setja sig inn í ný verkefni og átti sannarlega framtíðina fyrir sér við rannsóknir á náttúru Austurlands.

Fríða var góður samstarfsmaður, örlítið feimin í fyrstu, hógvær, jákvæð, hlýleg og skemmtilega húmorísk og glettin. Það var gaman að spjalla við hana, enda hafði hún sinnt frumlegum rannsóknum um ævina og hafði frá mörgu að segja. Fríða hafði samkennd með bæði mönnum og dýrum og voru mýs og íkornar í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Það var henni því mikið tilhlökkunarefni að undirbúa vöktun á hagamúsum sem hefjast áttu í haust í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands. Við munum alltaf minnast Fríðu hlýlega þegar við rekumst á þessi dýr í framtíðinni.“

Segja samstarfsmenn hennar að því miður hafi kynnin verið alltof og svo margar minningar sem átti eftir að skapa. „Við yljum okkur nú við góðar minningar úr samverustundum í skemmtilegri starfsmannaferð Náttúrustofunnar á Seyðisfjörð í lok júní og í Múlanum á föstudeginum fyrir slysið. Þar lék hún á alls oddi og sagði okkur meðal annars með bliki í auga hvað hún hlakkaði mikið til að fara að fljúga hreindýraflug með Skarphéðni þá helgi. Við geymum dýrmætar minningar með okkur. Kæra Fríða, við kveðjum þig með trega og þökkum þér innilega fyrir vináttuna og samstarfið. Megi minningin um yndislegu og glettnu Fríðu veita styrk á erfiðum tímum.“

Senda samstarfsmenn Fríðu foreldrum hennar, systrum, mágum og frændsystkinum sínar innilegustu samúðarkveðjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum