fbpx
Þriðjudagur 21.maí 2024
Fréttir

Kærleiksher Stebba og Maju stofnar hvatninga- og menntasjóð fyrir börn hans

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 2. ágúst 2023 18:30

María og Stefán ásamt börnum sínum Töru Guðrúnu og Sigurði Leó.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Ey­steinn Sig­urðsson, fram­kvæmda­stjóri og fyrr­um útvarpsmaður á FM957, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 16. júlí, 51 árs að aldri. Útför­ hans fór fram frá Hafn­ar­fjarðar­kirkju mánu­dag­inn 31. júlí.

Stefán læt­ur eft­ir sig eig­in­kon­una Maríu Lovísu Árna­dótt­ur og tvö börn þeirra, Töru Guðrúnu, 19 ára, og Sig­urð Leó, 16 ára.

Sjá einnig: Ásgeir Kolbeins minnist Stefáns vinar síns – Hvetur fólk til að styrkja börn hans

Stefán var vinamargur og er hans sárt saknað af fjölskyldu hans og öðrum ástvinum. Vinir fjölskyldunnar hafa stofnað hvatninga- og menntasjóð í minningu Stefáns fyrir börn hans. 

„Elsku Stebbi okkar hafði stóra drauma fyrir Töru og Sigga sinn og vildi að þau myndu ganga menntaveginn áhyggjulaus og upplifa eigin drauma um nám í útlöndum eins og hann og Maja gerðu hér áður í Arizona. Okkur ástvinum langar að hjálpa þeim og hvetja í þvi sem þau taka sér fyrir hendur í framtíðinni. Því höfum ákveðið að stofna hvatninga- og menntasjóð í minningu Stebba fyrir Töru og Sigga. Með fyrirfram þakklæti Kærleiksher Mæju og Stebba,“

segir í lýsingu sjóðsins, sem leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir birti á Facebook.

Við eigum svo sannarlega einstaka vini og sannan Kærleiksher. Elska ykkur svo heitt,segir María í athugasemd hjá Nínu.

Þeir sem vilja styrkja börn Stefáns geta lagt inn á neðangreindan reikning, sem er á nafni og kennitölu Maríu Lovísu eftirlifandi eiginkonu hans: 

Reikningur: 0301-26 – 013313
Kennitala: 180474-5019

Stefán og María stunduðu nám í kring­um alda­mót­in í Arizona í Bandaríkjunum. Í fram­haldi stofnuðu þau þar heim­ili og rekst­ur og fædd­ust börn þeirra í Banda­ríkj­un­um.

Stefán var út­varps­maður á FM957 um langt ára­bil og stýrði þar hinum vin­sæla þætti Ró­legt og róm­an­tískt. Árið 2021 stofnaði hann ásamt öðrum fyr­ir­tækið Gyna­MEDICA sem sér­hæf­ir sig í heilsuþjón­ustu fyr­ir kon­ur. Áður var hann fjár­mála­stjóri Wow air, CCP Games og starfaði sem end­ur­skoðandi í Banda­ríkj­un­um fyr­ir fyr­ir­tæki og stofn­an­ir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu nýjustu treyju Víkings sem fær góð viðbrögð – ,,Óður til samfélagsins í 108″

Sjáðu nýjustu treyju Víkings sem fær góð viðbrögð – ,,Óður til samfélagsins í 108″
Fréttir
Í gær

Blaðamannafélagið og SA undirrita kjarasamninga

Blaðamannafélagið og SA undirrita kjarasamninga
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sagði yfirmanninn hafa komið illa fram við sig og mismunað sér en var ekki nógu skýr

Sagði yfirmanninn hafa komið illa fram við sig og mismunað sér en var ekki nógu skýr