Á aðeins fimm mánuðum var kennslubók í sögu, fyrir menntaskóla, endurritið með það að markmiði að fegra bæði fortíðina og nútíðina.
Vladimir Medinsky, einn af ráðgjöfum Pútíns, Anatoly Torknuov, fyrrum menningarmálaráðherra, og Alexander Chubaryan, sagnfræðingur, sáu um endurritunina sögunnar til að tryggja að hún passi við afstöðu Pútíns og ríkisins. The Guardian skýrir frá þessu.
Búið er að endurrita stóran hluta af sögu síðustu aldar og þá sérstaklega áttunda, níunda og tíunda áratugarins. Fjallað er um innlimum Krím í Rússland 2014 og sagt að þannig hafi Rússar „tryggt frið í nasistaríkinu“. Einnig er fjallað um hina „sérstöku hernaðaraðgerð“ í Úkraínu en það er hið opinbera heiti á innrásinni í Úkraínu.
Það er engin tilviljun að bókinni er beint að ungmennum því það er oft auðveldara að hafa áhrif á þau en fullorðna og einnig verður hægt að tryggja að upp vaxi kynslóð sem trúi á það sem ríkisvaldið segir.