fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Þorvaldur segir að líkurnar á öflugu gosi í Svartsengi fari vaxandi – Gæti náð að Bláa lóninu á 3 mínútum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 6. nóvember 2023 07:54

Þorvaldur Þórðarson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands, segir að líkurnar á öflugu gosi í Svartsengi fari vaxandi eftir því sem þrýstingur heldur áfram að byggjast upp í geymsluhólfi kvikunnar en það er á 4-5 km dýpi.

„Það er enn þá að flæða inn í þetta geymsluhólf sem er á 4-5 kílómetra dýpi. Eftir því sem meiri kvika flæðir inn, þeim mun meiri þrýstingur byggist upp í því. Ef þakið gefur sig, sem getur alveg gerst, þá eftir því sem yfirþrýstingurinn er meiri, þeim mun meiri hraði yrði á risi kvikunnar og meira afl í gosinu. Eftir því sem þessi atburðarás gengur lengur, þá aukast líkurnar á öflugra gosi, alla vega í byrjun,“ sagði Þorvaldur í samtali við Morgunblaðið í dag.

Hann sagði að það séu ákveðnar breytur sem ráði því hversu hratt kvikan berst upp á yfirborðið. Meðal annars hversu mikill þrýstingur sé, því meiri sem hann sé, þeim mun hraðar rísi hún.  Hann sagði líklegt að kvikan muni rísa um 1-4 cm á sekúndu og þá tæki hana 1-4 daga að komast upp á yfirborðið.

„Ég held að við myndum nú fá einhvern viðbragðstíma út frá því þegar við erum farin að sjá kvikuna rísa til yfirborðs. Þá myndum við sennilega fara að sjá skjálfta grynnka og gosóróa og skjálfta koma inn,“ sagði hann einnig og bætti við að hugsanlega geti sólarhringur liðið á milli þess að kvika fer að rísa og þar til hún kemst upp á yfirborðið.

Hann benti jafnframt á að sú staða geti komið upp að kvikustrókar, sem geta framleitt hraun sem ferðast á allt að 20 km/klst, myndist. Ef þannig kvika kemur upp á yfirborðið við Illahraungsgíga, um 1 km frá Bláa lóninu, þá geti hraun náð að Bláa lóninu á þremur mínútum.

Hægt er að lesa nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“